6. (2201). fundur
6. (2201). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.02.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2602149
01
Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar.
Á fund bæjarráðs mættu Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Veitna, Nanna Kristín Tryggvadóttir deildarstjóri viðskiptatengsla og Jón Trausti Kárason forstöðumaður vatns- og fráveitu og kynntu gjaldskrárbreytingar Veitna og áformuð verkefni innan Garðabæjar á vegum fyrirtækisins.
Málsnúmer 2509445
02
Útholt 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Platún ehf., kt. 491204-2490, leyfi fyrir byggingu raðhúss á tveimur hæðum að Útholti 5.
Málsnúmer 2602200
03
Útholt 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Platún ehf., kt. 491204-2490, leyfi fyrir byggingu raðhúss á tveimur hæðum að Útholti 7.
Málsnúmer 2602199
04
Útholt 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Platún ehf., kt. 491204-2490, leyfi fyrir byggingu raðhúss á tveimur hæðum að Útholti 9.
Málsnúmer 2602198
05
Útholt 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Platún ehf., kt. 491204-2490, leyfi fyrir byggingu raðhúss á tveimur hæðum að Útholti 11.
Málsnúmer 1710244
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra sem unnin var af Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt.
Innan deiliskipulagssvæðisins eru tvö friðlýst svæði, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland í samræmi við 1. tl. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi, í samræmi við 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999.
Friðlýstu svæðin tvö mynda órofa heild frá strönd að núverandi samgöngumannvirkjum og er svæðið þekkt fyrir merkar hraunmyndanir sem ná niður að sjó. Svæðið er einnig þekkt fyrir forna slóða sem liggja í gegnum hraunið og Gálgakletta. Svæðið er á jaðri byggðar og er vinsælt göngusvæði einstaklinga og gönguhópa.
Megin markmið deiliskipulagsins er verndun mikilvægra náttúruminja, jarðmyndana, gróðurfars og fuglalífs. Einnig er lögð áhersla á fræðsluþátt friðlýsingarinnar og á það ekki síst við um sögulegar minjar.
Undirliggjandi markmið skipulagsins snúa að lýðheilsumarkmiðum Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að bæta vistvænar samgönguleiðir og skapa gott aðgengi að mikilvægum útivistarsvæðum.
Í skipulaginu er þannig reynt að stuðla að hollri útivist en á sama tíma vernda einstakar hraunmyndanir og náttúra með stýrðu aðgengi.
Í friðlýsingu fólkvangsins segir m.a. „markmið friðlýsingarinnar er að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi“, deiliskipulagið er unnið með það í huga ásamt ríkri áherslu á náttúruvernd.
Lýsing verkefnisins var samþykkt í byrjun árs 2019 og forkynning fór fram síðar á því ári.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hún skal kynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskiplags Garðabæjar sem nær til stígakerfis.
Málsnúmer 2203422
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á kafla 4.2 aðalskipulagsgreinargerðarinnar um stígakerfi. Svæðið sem tillagan nær til er allt land innan sveitarfélagsmarka Garðabæjar og miðar að því að skilgreina heildrænt og skilvirkt stígakerfi með öryggi og aðlaðandi umhverfi að leiðarljósi. Skilmálar tillögunnar eru ætlaðir til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Texti og myndir í kafla 4.2 um stígakerfi í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 munu verða felldir úr gildi og í staðinn komi endurskoðaður kafli um stígakerfið sem fram er settur í greinargerð framlagðrar tillögu sem kafli 2 "Breytingartillaga".
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2403474
08
Lambamýri - Yfirlýsing sveitarstjórnar vegna félagsmiðstöðvar fyrir eldra fólk.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta yfirlýsingu vegna félagsmiðstöðvar fyrir eldra fólk í Lambamýri.
Málsnúmer 2602150
09
Upplýsingar frá Náttúruverndarstofnun varðandi vinnu við breytingar á friðlýsingarskilmálum Reykjanesfólkvangs, dags. 09.02.26.
Lagt fram.
Málsnúmer 2602074
10
Viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.
Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti samantekt um viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfssamning milli Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.
Málsnúmer 2602152
11
Beiðni Hestamannafélagsins Spretts um niðurfellingu fasteignagjalda 2026, dags. 09.02.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 811.973 til greiðslu fasteignagjalda 2026.
Málsnúmer 2602212
12
Beiðni UMF Stjörnunnar um niðurfellingu fasteignagjalda 2026, dags. 12.02.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Ungmennafélaginu Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 7.509.496 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.
Málsnúmer 2602213
13
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga varðandi auglýsingu eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 12.02.26.
Lagt fram bréf Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Skipuð hefur verið tilnefningarnefnd sem tekur á móti framboðum og er frestur til kl. 12:00 á hádegi 27. febrúar nk.