4. (974). fundur
4. (974). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.02.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - 1. varaforseti
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Lilja Lind Pálsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Guðfinnur Sigurvinsson, varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. febrúar 2026 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 10/2 ´26.
Björg Fenger ræddi 6.tl. meðferðarheimili - lóð við Friðarvelli 1 og 10.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH- Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps. Áréttaði Björg bókun bæjarráðs um málið:
"Lögð fram skýrsla forsætisráðuneytisins vegna brúunar umönnunarbilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SSH frá fundi stjórnarinnar 2. febrúar sl. um mikilvægi þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu séu kölluð að borðinu við vinnuna og að tillögur skýrslunnar séu skoðaðar og ígrundaðar vel, en samkvæmt skýrslunni er mjög skammur tími ætlaður til undirbúnings og viðræðna vegna þeirra. Bæjarráð vísar málinu til skoðunar á fræðslu- og frístundasviði."
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 2.tl. vistun barna utan heimilis.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ og 2.tl. vistun barna utan heimilis og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ vill draga fram mikilvægi þess að bæjarráð fylgist með framkvæmd barnaverndar á þann hátt að við drögum fram mælikvarða um umfang, framfylgd og eftirlit með barnaverndarmálum. Hér þurfa mælikvarðar að vera skýrir og skiljanlegir, mæla fjölda mála, þyngd eða alvarleika þeirra en ekki síður hversu vel gengur að ná árangri þeirra. Síðast en ekki síst þurfum við að fylgjast með og fá samantekt um það hvernig eftirliti með þessum börnum er háttað.
Eftirlit með þeirri vistun er mikilvæg og við verðum að tryggja að hún sé fjármögnuð og hafi það rými að eftirlit fari fram. Ekki bara til þess að mæta lögmætu lágmarki heldur til þess að mæta þeim börnum sem við sem samfélag höfum beitt mest íþyngjandi úrræði barnaverndar. Þess vegna er það mikilvægt að eftirlitið styðji við markmið um þessar vistanir. Eftirlit þarf því hvoru tveggja að stuðla að öryggi og ásættanlegum aðbúnað barna en ekki síður að styðja og efla þá aðila sem vista eða fóstra þessi börn. Þessi stuðningur verður að vera til eflingar og mæta þörfum barnanna sjálfra og þeirra aðila sem sinna forsjárskyldum þessara barna. Öll börn sem eru vistuð utan heimilis hafa upplifað áfall og við sem samfélag höfum ákveðið með inngripi okkar að þetta áfall sé óásættanlegt og því þarf að mæta með stuðningi og skilningi."
Þá ræddi hann 6.tl. meðferðarheimili - lóð við Friðarvelli 1 og 12. tl. tilkynningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi átak til hvatningar til framboða.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. vistun barna utan heimilis og tók undir bókun Guðlaugs Kristmundssonar. Þá ræddi hún 10.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - brúum umönnunarbilið - skýrsla og tillögur aðgerðarhóps.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 3.tl. endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ 2026, 6.tl. meðferðarheimili - lóð við Friðarvelli 1 og 9.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ, 2.tl. vistun barna utan heimilis og 10.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - brúum umönnunarbilið - skýrsla og tillögur aðgerðarhóps.
Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.8 - 2507256 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Reglur um greiðslur til dagforeldra.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að reglum um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 17/2 ´26.
Björg Fenger ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Gálgahraun, deiliskipulag friðlands og 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 8.tl. Lambamýri - yfirlýsing sveitarstjórnar vegna félagsmiðstöðvar fyrir eldra fólk.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi. Lagði Þorbjörg fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn vekur athygli á því að stígar eru skipulagðir meðfram Hraunholtslæk neðan við Flatir og meðfram strandlengjunni á Arnarnesi. Báða stíga er einnig að finna í núgildandi skipulagi en hafa ekki komið til framkvæmda. Í nýrri aðalskipulagstillögu er gert ráð fyrir tengistíg með malbikuðu yfirborði við Hraunholtslæk, sem er vel. Á Arnarnesi hins vegar er enn gert ráð fyrir útivistarstíg, nánar tiltekið í flokki B. Samkvæmt þeirri skilgreiningu verður hann þröngur malarstígur án lýsingar. Garðabæjarlistinn vill sjá útivistarstíg af gerð A á Arnarnesi, með malbiki og lágstemmdri lýsingu. Bæjarbúar hafa lengi beðið eftir stígum á þessum stöðum og kominn tími til þess að gera þá að veruleika. Bæjarfulltrúar Viðreisnar og Framsóknar taka undir bókunina."
Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi og 1.tl. Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar. Lagði Almar fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir vonbrigðum yfir vinnubrögðum Veitna varðandi hækkun á fastagjaldi hitaveitu á vegum fyrirtækisins. Hækkunin og ástæða hennar var illa kynnt fyrir viðskiptavinum og gerð án samráðs við sveitarfélög sem standa utan eigendahóps félagsins. Þá gera bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins athugasemd við að undanfarin ár hafi umtalsverðar fjárhæðir verið greiddar út í arð til eiganda á sama tíma og fjárfestingarþörf félagsins hefur vaxið."
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar.
Ingvar Arnarson ræddi 1.tl. Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar.
Bjarni Th. Bjarnason ræddi 1.tl. Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi. Tók hún undir bókun Þorbjargar Þorvaldsdóttur.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi. Tók hann undir bókun Þorbjargar Þorvaldsdóttur.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi og 1.tl. Veitur - gjaldskrárbreytingar og verkefni innan Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 13.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.6 - 1710244 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra sem unnin var af Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt. Innan deiliskipulagssvæðisins eru tvö friðlýst svæði, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland í samræmi við 1. tl. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi, í samræmi við 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999. Friðlýstu svæðin tvö mynda órofa heild frá strönd að núverandi samgöngumannvirkjum og er svæðið þekkt fyrir merkar hraunmyndanir sem ná niður að sjó. Svæðið er einnig þekkt fyrir forna slóða sem liggja í gegnum hraunið og Gálgakletta. Svæðið er á jaðri byggðar og er vinsælt göngusvæði einstaklinga og gönguhópa. Megin markmið deiliskipulagsins er verndun mikilvægra náttúruminja, jarðmyndana, gróðurfars og fuglalífs. Einnig er lögð áhersla á fræðsluþátt friðlýsingarinnar og á það ekki síst við um sögulegar minjar. Undirliggjandi markmið skipulagsins snúa að lýðheilsumarkmiðum Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að bæta vistvænar samgönguleiðir og skapa gott aðgengi að mikilvægum útivistarsvæðum. Í skipulaginu er þannig reynt að stuðla að hollri útivist en á sama tíma vernda einstakar hraunmyndanir og náttúra með stýrðu aðgengi. Í friðlýsingu fólkvangsins segir m.a. „markmið friðlýsingarinnar er að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi“, deiliskipulagið er unnið með það í huga ásamt ríkri áherslu á náttúruvernd. Lýsing verkefnisins var samþykkt í byrjun árs 2019 og forkynning fór fram síðar á því ári. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hún skal kynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskiplags Garðabæjar sem nær til stígakerfis.
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 3 (12.2.2026) - Gálgahraun, deiliskipulag friðlands..pdf
- 260209- deiliskipulag í vinnslu .pdf
- deiliskipulag- Gálga- og Garðahraun neðra-greinargerð.pdf
- 260212-deiliskipulag- Gálga- og Garðahraun neðra-greinargerð.pdf
- 260212-Deiliskipulag - Gálgahraun og Garðahraun neðra.pdf
- Gálgahraun friðlýsingarskilmálar.pdf
2.7 - 2203422 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á kafla 4.2 aðalskipulagsgreinargerðarinnar um stígakerfi. Svæðið sem tillagan nær til er allt land innan sveitarfélagsmarka Garðabæjar og miðar að því að skilgreina heildrænt og skilvirkt stígakerfi með öryggi og aðlaðandi umhverfi að leiðarljósi. Skilmálar tillögunnar eru ætlaðir til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Texti og myndir í kafla 4.2 um stígakerfi í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 munu verða felldir úr gildi og í staðinn komi endurskoðaður kafli um stígakerfið sem fram er settur í greinargerð framlagðrar tillögu sem kafli 2 "Breytingartillaga". Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
2.8 - 2403474 - Lambamýri - Yfirlýsing sveitarstjórnar vegna félagsmiðstöðvar fyrir eldra fólk.
Bæjarstjórn staðfestir yfirlýsingu vegna félagsmiðstöðvar fyrir eldra fólk í Lambamýri.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11/2 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025, 2.tl. afreksstyrkir 2026 - fyrri úthlutun, 3.tl. nýting hvatapeninga 2025, 4.tl. aðsókn í sundlaugar 2025, 5.tl. þarfagreiningu um íþróttasvæði í og við Miðgarð og 15.-16.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Lilja Lind Pálsdóttir ræddi 3.tl. nýting hvatapeninga 2025
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 12/2 ´26.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 3.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 3.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Brynja lagði fram svohljóðandi bókun:
"Framsókn fagnar að endurskoðun á þjónustu við íbúa með fatlanir eða aukna þjónustu- og stuðningsþörf sé að ljúka. Garðabær hefur aukið framlag sitt í málaflokkinn síðustu ár og er það vel. Teljum við í Framsókn mikilvægt að byggja enn frekar undir þær grunnstoðir sem eru þessum viðkvæma hópi mikilvægar.
Nauðsynlegt er að koma á forgangi fyrir ungmenni Garðabæjar á starfsbraut í þeirra hverfisskóla eða Fjölbrautarskólans í Garðabæ. Slíkur forgangur er í gildi í öðrum framhaldsskólum og því sitja ungmennin okkar í verri stöðu en önnur við útskrift úr grunnskóla og eiga í meiri hættu en fötluð ungmenni í öðrum sveitarfélögum að fá höfnun um inngöngu á slíkar brautir.
Það vekur jafnframt áhyggjur að engin séu vinnuúrræðin fyrir fötluð ungmenni innan sveitarfélagsins. Teljum við að með góðu fordæmi sveitarfélagsins sjálfs og stofnana þess mætti útvíkka samstarf um að veita ungmennum með fötlun störf í hentugu starfshlutfalli víða í sveitarfélaginu okkar. Slíkt er samfélagsleg ábyrgð sem ætti að vera einfalt og sjálfsagt að koma í verk."
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 3.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Almar Guðmundsson ræddi 3.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Ingvar Arnarson ræddi 3.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Fundargerðin er lögð fram.
12
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ 2026
Bæjarstjórn staðfestir reglur Garðabæjar um fjárhagsaðstoð, með gildistíma frá og með 10. febrúar 2026.
13
Viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning milli Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.
14
Kosning fulltrúa í fastanefnd.
Gerð er tillaga um að Guðjón Pétur Lýðsson (G) verði kjörinn aðalmaður í Íþrótta- og tómstundaráð í stað Hörpu Þorsteinsdóttur (G). Jafnframt er gerð tillaga að Þorbjörg Þorvaldsdóttir (G) verði kjörin varamaður í íþrótta- og tómstundaráð í stað Sigurðar Sveins Þórðarsonar (G).
Tillagan er samþykkt samhljóða.