Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 10/2 ´26.

Málsnúmer 2602004F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

4. (974). fundur

Björg Fenger ræddi 6.tl. meðferðarheimili - lóð við Friðarvelli 1 og 10.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH- Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps. Áréttaði Björg bókun bæjarráðs um málið:
"Lögð fram skýrsla forsætisráðuneytisins vegna brúunar umönnunarbilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SSH frá fundi stjórnarinnar 2. febrúar sl. um mikilvægi þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu séu kölluð að borðinu við vinnuna og að tillögur skýrslunnar séu skoðaðar og ígrundaðar vel, en samkvæmt skýrslunni er mjög skammur tími ætlaður til undirbúnings og viðræðna vegna þeirra. Bæjarráð vísar málinu til skoðunar á fræðslu- og frístundasviði."

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 2.tl. vistun barna utan heimilis.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ og 2.tl. vistun barna utan heimilis og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ vill draga fram mikilvægi þess að bæjarráð fylgist með framkvæmd barnaverndar á þann hátt að við drögum fram mælikvarða um umfang, framfylgd og eftirlit með barnaverndarmálum. Hér þurfa mælikvarðar að vera skýrir og skiljanlegir, mæla fjölda mála, þyngd eða alvarleika þeirra en ekki síður hversu vel gengur að ná árangri þeirra. Síðast en ekki síst þurfum við að fylgjast með og fá samantekt um það hvernig eftirliti með þessum börnum er háttað.
Eftirlit með þeirri vistun er mikilvæg og við verðum að tryggja að hún sé fjármögnuð og hafi það rými að eftirlit fari fram. Ekki bara til þess að mæta lögmætu lágmarki heldur til þess að mæta þeim börnum sem við sem samfélag höfum beitt mest íþyngjandi úrræði barnaverndar. Þess vegna er það mikilvægt að eftirlitið styðji við markmið um þessar vistanir. Eftirlit þarf því hvoru tveggja að stuðla að öryggi og ásættanlegum aðbúnað barna en ekki síður að styðja og efla þá aðila sem vista eða fóstra þessi börn. Þessi stuðningur verður að vera til eflingar og mæta þörfum barnanna sjálfra og þeirra aðila sem sinna forsjárskyldum þessara barna. Öll börn sem eru vistuð utan heimilis hafa upplifað áfall og við sem samfélag höfum ákveðið með inngripi okkar að þetta áfall sé óásættanlegt og því þarf að mæta með stuðningi og skilningi."
Þá ræddi hann 6.tl. meðferðarheimili - lóð við Friðarvelli 1 og 12. tl. tilkynningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi átak til hvatningar til framboða.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. vistun barna utan heimilis og tók undir bókun Guðlaugs Kristmundssonar. Þá ræddi hún 10.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - brúum umönnunarbilið - skýrsla og tillögur aðgerðarhóps.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 3.tl. endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ 2026, 6.tl. meðferðarheimili - lóð við Friðarvelli 1 og 9.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ, 2.tl. vistun barna utan heimilis og 10.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - brúum umönnunarbilið - skýrsla og tillögur aðgerðarhóps.

Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.