43. (1951). fundur
43. (1951). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
03.11.2020
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 780/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 20. ágúst 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - neyðarstig almannavarna.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hertum sóttvarnarráðstöfunum sem tóku gildi 1. nóvember sl. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember nk.
Bæjarstjóri upplýsti að unnið hafi verið að breyttum útfærslum í stofnum Garðabæjar en reglurnar kalla á breytingar á starfsemi skóla og annarra stofnana. Á bæjarskrifstofunum hefur starfsemin á 3. hæð verið skipt upp í þrjú hólf til að tryggja 10 manna fjöldamörk og margir starfsmenn vinna heima.
Ný reglugerð um takmarkanir á skólastarfi hefur verið gefin út og tók gildi í dag. Í leikskólum eru breytingar minniháttar en í grunnskólum og tónlistarskólum er gert ráð fyrir töluverðum takmörkunum hvaða varðar fjölda í kennslustofum og öðrum svæðum. Þá er krafa um grímuskyldu nemenda í efri bekkjum grunnskólans þegar víkja þarf frá tveggja metra reglunni. Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að nemendur í 5.-10. bekk og starfsfólk notist við andlitsgrímu.
Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri, þ.m.t. starf félagsmiðstöðva, er óheimilt á meðan reglugerðin er í gildi.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir vinnu við útfærslu á skólastarfi í skólum bæjarins. Sviðsstjóri hrósaði stjórnendum og starfsmönnum skólanna fyrir magnað vinnuframlag við að skipuleggja skólastarf við þessar erfiðu aðstæður. Öll börn koma í skóla á hverjum degi en kennsla í sömum greinum er takmörkuð en reynt er að bæta það upp með heimaverkefnum. Fram kom að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa haft samráð um alla megindrætti við útfærslu á skólastarfi.
Félagsmálastjóri fóru yfir stöðu mála á fjölskyldusviði.
Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri sagði frá viðburðum sem hefur verið streymt til allra starfsmanna og upplýsti að mannauðsdeild er í reglulegum samskiptum við forstöðumenn stofnana.
Svanhildur Þengilsdóttir, stuðnings- og þjónustufulltrúi, sagði frá stöðu mála á Ísafold en þar hefur starfsemin gengið vel að undanförnu og hefur dagdvölin verið opin. Jónshús er opið og hafa starfsmenn í samstarfi við Félag eldri borgara verið að hringja í eldra fólk til að fylgjast með líðan þess og almennt aðstæðum þess. Starfsemi heimaþjónustu hefur gengið vel og er lítið um afbókanir. Lögð er áhersla á sóttvarnir og grímunotkun starfsmanna.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Gunnar Valur Gíslason, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.
Fulltrúar í neyðarstjórn Garðabæjar, Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri, Björgvin Magnússon, forstöðumaður eignasjóðs, Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi, Vala Dröfn Hauksdóttir, deildarstjóri tölvudeildar, Svanhildur Þengilsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu og Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri voru á fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 1904109
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Viðaukar 11-14.
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 11, 12, 13 og 14 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. nr. 11, 12, 13 og 14 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 11
Covid útgjöld
Eftirfarandi kostnaður hefur fallið á málaflokka vegna covid útgjalda.
Kostnaður sem forstöðumenn voru beðnir um að merkja með sérstöku verknúmeri og er vegna beins útlagðs kostnaður vegna Covid 19 heimsfaraldurs.
Um er að ræða hreinlætisvörur, hanskar, grímur, spritt, viðbót við tölvubúnað sem nauðsynlegur var vegna fjarfunda og fleira.
Fjölskyldusvið 300.000 02-xxxx
Fræðslumál 15.000.000 04-xxxx
Menningarmál 700.000 05-xxxx
Æskulýðs og íþróttamál 2.000.000 06-xxxx
Umhverfismál 200.000 11-xxxx
Sameiginlegur kostnaður 2.600.000 21-xxxx
Eignasjóður 200.000 31-xxxx
Samtals 21.000.000
Fjölskyldusvið
Samningur við Vinakot vegna búsetuúrræða sem gert var ráð fyrir hluta ársins að fjárhæð 44,5 millj. kr. var framlengdur út árið.
Jafnframt hefur reynst nauðsynlegt að kaupa sérfræðiráðgjöf sem snýr að atferlisþjálfun.
Aðkeypt sólarhringsþjónusta 44.500.000 02530-4382
Aðkeypt sérfræðisþjónusta 500.000 02530-4990
Samtals 45.000.000
Fjármögnun:
Kostnaðarauka skal mætt með seldum byggingarrétti
Byggingarréttur -66.000.000 31400-0397
Viðauki 12
Breyting á fjárfestingaáætlun
Lagt er til að eftirfarandi breyting verði gerð á fjárfestingaráætlun 2020.
Við upphaflega áætlun var gert ráð fyrir nettó tölu vegna byggingar fjölnota íþróttahús. Sú breyting er nú gerð að tekjufæra byggingarétt í málaflokki 31 eignasjóði, en færa ekki tekjur á móti kostnaði við byggingu mannvirkisins.
Fjárfestingar:
Skólahúsnæði 108.000.000
Framlag Urriðaholts -110.000.000
Íþróttamannvirki 32.000.000
Fjölnota íþróttahús 1.000.000.000
Búsetuúrræði fyrir fatlaða -190.000.000
Vífilsstaðaland -211.800.000
Samtals 628.200.000
Fjármögnun:
Seldur byggingarréttur -628.200.000 31400-0397
Viðauki 13
Lækkun tekna vegna Covid-19
Vegna heimsfaraldurs Covid 19 verður að breyta áætlun útsvarstekna, vegna gríðarlegra breytinga á vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir að útsvarstekjur á árinu 2020 verði um 400 millj. kr. lægri en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir
Staðgreiðsla útsvars 400.000.000 00010-0021
Leikskólagjöld og gjöld í tómstundaheimilum hafa verið felld niður þegar börn hafa verið í sóttkví eða veik vegna Covid-19.
Þjónustugjöld hafa verið lækkuð eða felld niður vegna lokunar og skertrar þjónustu
Leikskólagjöld 37.000.000
Þjónustugjöld tómstundaheimila 14.000.000
Samtals 51.000.000
Viðauki 14
Vegna samþykktar bæjarstjórnar um almenningssamgöngur í Urriðaholti þar af bæta við 13 millj. kr á fjárhagsáætlun til að mæta kostnaði við verkefnið.
Strætó 13.000.000 10720-9195
Fjármögnun:
Lækkun rekstrarafgangs -13.000.000
Millifærsla milli A- og B- sjóðs
Hjúkrunarheimilið Ísafold var rekið sem B-deildar fyrirtæki Garðabæjar á árunum 2013 - 2017. Halli var á rekstrinum öll árin. Samkvæmt reikningsskilaaðferðum sveitarfélaganna ber að gera reikningskil við lok starfsemi B-deildarfyrirtækja milli A og B sjóðs. Þar sem Garðabær var í málaferlum við ríkið vegna hallareksturs stofnunarinnar var ekki gengið frá þessu uppgjöri og ákveðið að bíða með það þangað til niðurstaða dóms lægi fyrir. Nú þykir því rétt að gera upp þessi reikningskil milli A- og B- sjóðs enda liggur fyrir niðurstaða með dómi Hæstaréttar. Það er því fullreynt að ríkið mun ekki standa skil á verkefninu gagnvart Garðabæ.
Niðurstaðan hefur engin áhrif á samantekin reikningsskil.
Hjúkrunarheimili uppgjör A sjóður 538.000.000
Hjúkrunarheimili uppgjör B- sjóður -538.000.000
Engin áhrif á heildarrekstur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir útkomuspá 2020 að teknu tilliti til ofangreindra viðauka.
Málsnúmer 2006130
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024).
Fjármálastjóri kynnti fyrstu drög að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021 og árin 2022-2024 ásamt drögum að framkvæmdayfirliti.
Gert er ráð fyrir að frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021(2021-2024) verði lagt fram við fyrri umræðu í bæjarstjórn 19. nóvember nk.
Málsnúmer 2001147
04
Þrastanes 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jónu Sigríði Einarsdóttir, kt. 310365-3009, leyfi fyrir stækkun á samþykktum teikningum einbýlishúss í byggingu að Þrastanesi 10.
Málsnúmer 2003173
05
Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Antoni Kristni Þórarinssyni, kt. 140379-4339, leyfi fyrir breytingum á samþykktum teikningum einbýlishúss í byggingu að Haukanesi 24.
Málsnúmer 2009627
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi leyfi til framkvæmda við endurnýjun aðkomuvegar að Hliði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 við endurnýjun aðkomuvegar að Hliði á Álftanesi. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Hlið, upphaflega samþykkt árið 2000. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 12. gr. auglýsingar nr. 606/2020 um friðlýsingu Hliðs í Garðabæ , sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Málsnúmer 2009028
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Heiðmörk, upphaflega samþykkt 2017, sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1115/2017 og breyting deiliskipulagi , sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1047/2020. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 5. gr. auglýsingar um friðlýsingu Vífilsstaðavatns og nágrennis nr. 1064/2007, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Málsnúmer 2010333
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis við Brekkuás.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis við Brekkuás. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.
Málsnúmer 2010080
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis í Garðahverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis í Garðahverfi. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.
Ingvar Arnarson, vakti athygli á bókun Baldurs Ó. Svavarssonar sem lögð var fram við afgreiðslu málsins í skipulagsnefnd.
Málsnúmer 2010078
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar sbr. skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahverfis. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi, sbr. 2. mgr. 40. gr. sömu laga.
Málsnúmer 2008336
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna landnotkunarreits í norðanverðu Urriðaholti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar landnotkunarreit 5.04 VÞ í norðanverðu Urriðaholti. Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1811125
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Málsnúmer 2007239
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 42.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða úr 9 í 10 við Urriðaholtsstræti 42. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga sbr. einnig 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 860.672 á íbúð m.v. BVT 743,4 stig í nóvember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 2010028
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 23.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að þakpappi verði ysta byggingarefni á þaki en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2009377
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - sérstök búsetuúrræði.
Lögð fram.
Málsnúmer 2009375
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - stefna um íbúðarbyggð.
Lögð fram.
Málsnúmer 2010254
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - endurskoðun á stefnu um íbúðarbyggð o.fl.
Lögð fram.
Málsnúmer 2009376
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - nýr Skerjafjörður.
Lögð fram.
Bæjarverkfræðingur vakti athygli á að tillagan gæti haft áhrif á staðsetningu skolpdælustöðvar sem er í sameiginlegri eigu sveitarfélaganna Reykjavíkur, Kópavogs Seltjarnarness og Garðabæjar. Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að kanna málið nánar og eftir atvikum gera athugasemdir til að tryggja skaðleysi Garðabæjar komi til röskunar og kostnaðar vegna breytingar á staðsetningu og byggingar nýrrar dælustöðvar.
Málsnúmer 2010107
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi Kópavogsbæjar um drög að skógræktaráætlun á Lakheiði í Lækjarbotnum.
Lögð fram.
Málsnúmer 2010413
20
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til, 206. mál., dags. 23.10.20.
Lögð fram.
Málsnúmer 2010485
21
Bréf Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun 2021, dags. 16.10.20.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021. Lagt fram rekstraruppgjör janúar - ágúst 2020.
Björg Fenger, fulltrúi í stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins sagði frá stöðu vinnu við framtíðarsýn og uppbyggingu á skíðasvæðunum.
Málsnúmer 2010425
22
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um málþing á vefnum um íbúasamráð, dags. 26.10.20.
Lögð fram.
Málsnúmer 1912077
23
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á synjun byggingarleyfis að Reynilundi 11
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem fram kemur að kæru vegna synjunar á byggingarleyfi er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010506
24