Beint í efni

Víkurgata 23 - skilmálabreyting samkv meðfylgjandi bréfi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2010028

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að þakpappi verði ysta byggingarefni á þaki en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr.2010028)

Bæjarráð Garðabæjar

02

43. (1951). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að þakpappi verði ysta byggingarefni á þaki en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem nær til lóðarinnar Víkurgata 23 sem gerir ráð fyrir því að pappi verði heimilaður sem ysta byggingarefni á þaki.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur að þakpappi getur vel verið í samræmi við markmið deiliskipulagsins um gott yfirbragð byggingar ef vandað er til útfærslunnar og að litur sé í gráskala. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis fyrir Víkurgötu 23 verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar hvað þakpappa sem ysta byggingarefni varðar.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

12. fundur

Lögð fram tillaga um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að þakpappi verði heimilaður. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.