Beint í efni

Urriðaholtsstræti 42, dsk breyting

Málsnúmer 2007239

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða úr 9 í 10 við Urriðaholtsstræti 42. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga sbr. einnig 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 2007239)
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 860.672 á íbúð m.v. BVT 743,4 stig í nóvember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Bæjarráð Garðabæjar

02

43. (1951). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða úr 9 í 10 við Urriðaholtsstræti 42. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga sbr. einnig 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 860.672 á íbúð m.v. BVT 743,4 stig í nóvember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu að lokinni auglýsingu. Gert er ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu Urriðaholtstræti 42 fjölgi úr 9 í 10 og fjölgar bílastæðum sem því nemur.Engar athugasemdir bárust. Tillagan því samþykkt í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

13. (872). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Í tillögunni er gert ráð fyrir að íbúðum í fjölbýlishúsinu við Urriðaholtsstræti 42 fjölgi úr 9 í 10.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 858.356 á íbúð m.v. BVT 741,4 stig í september 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr. 2007239)

Bæjarráð Garðabæjar

05

36. (1944). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Í tillögunni er gert ráð fyrir að íbúðum í fjölbýlishúsinu við Urriðaholtsstræti 42 fjölgi úr 9 í 10.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 858.356 á íbúð m.v. BVT 741,4 stig í september 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Gert er ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu Urriðaholtstræti 42 fjölgi úr 9 í 10 og fjölgar bílastæðum sem því nemur. Umsögnin er jákvæð.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir því að íbúðum á lóðinni fjölgi út 9 í 10. Færð eru rök fyrir því að sú lausn liggi beinast við við hönnun byggingarinnar.
Tillögu er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.