Beint í efni

Hönnun - Útboð - Gatnagerð Hlið á Álftanesi

Málsnúmer 2009627

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 við endurnýjun aðkomuvegar að Hliði á Álftanesi. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Hlið, upphaflega samþykkt árið 2000. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 12. gr. auglýsingar nr. 606/2020 um friðlýsingu Hliðs í Garðabæ, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. (Mál nr. 2009627)

Bæjarráð Garðabæjar

02

43. (1951). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 við endurnýjun aðkomuvegar að Hliði á Álftanesi. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Hlið, upphaflega samþykkt árið 2000. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 12. gr. auglýsingar nr. 606/2020 um friðlýsingu Hliðs í Garðabæ , sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram umsókn tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdleyfi vegna endurnýjunar aðkomuvegar og lagningu bílastæða að Hliði. Framkvæmdalýsing er í samræmi við deiliskipulag Hliðs og friðlýsingu fólkvangsins að Hliði.

Með vísan í 13. gr. skipulagslaga samþykkir skipulagsnefnd veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við framlögð gögn en með fyrirvara um samþykki Umhverfisstofnunar.