Beint í efni

Hönnun - Útboð - Útivistarstígur frá Vífilsstaðarvatni að Grunnuvatnaskarði

Málsnúmer 2009028

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Heiðmörk, upphaflega samþykkt 2017, sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1115/2017 og breytingu deiliskipulagi , sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1047/2020. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 5. gr. auglýsingar um friðlýsingu Vífilsstaðavatns og nágrennis nr. 1064/2007, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. (Mál nr. 2009028)

Bæjarráð Garðabæjar

02

43. (1951). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Heiðmörk, upphaflega samþykkt 2017, sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1115/2017 og breyting deiliskipulagi , sbr. auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1047/2020. Framkvæmdin er háð leyfi Umhverfisstofnunar, samkvæmt 5. gr. auglýsingar um friðlýsingu Vífilsstaðavatns og nágrennis nr. 1064/2007, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð útivistarstígs frá Vífilsstaðavatni í Grunnavatnsskarð.
Óveruleg breyting deiliskipulags hefur tekið gildi og er umsókn í samræmi við hana. Þar sem umsókn gerir ráð fyrir því að stígurinn verði aðeins lagður upp í Grunnavatnsskarð þá leggur skipulagsnefnd til að stígurinn varði lagður þvert á reiðstíg og nokkuð lengra til suðurs. Mót reiðstígs og útivistarstígs verði útfærð þannig að öryggis sé gætt og að merkingar séu skýrar.
Með vísan í 13. grein skipulagslaga og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfið með fyrirvara um samþykki Umhverfisstofnunar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

42. (1950). fundur

Frestað.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

12. fundur

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að framkvæmdaleyfi sé veitt þegar auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingar hefur birst í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði sem er í samræmi við tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur. Lagðar fram umsagnir Landnets, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Hestamannafélagsins Spretts. Í umsögn Spretts er því mótmælt að stígurinn sé í fyrsta áfanga lagður upp í Grunnavatnsskarð þar sem hann tengist reiðstíg.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

08

25. fundur

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við legu stígsins. Stígurinn gerður meira aflíðandi og því aðgengilegri fyrir alla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

9. fundur

Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings um framkvæmdaleyfi fyrir gerð útivistarstígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði. Umsókn fylgja tillögur að útfærslu sem Landslag ehf hefur unnið. Tillaga er ekki fyllilega í samræmi við deiliskipulag hvað legu stígs varðar og kallar á óverulega deiliskipulagsbreytingu.
Umsókn vísað til umsagnar umhverfisnefndar, Umhverfisstofnunar, Skógræktarfélags Reykjavíkur, Hestamannafélagsins Spretts og Landsnets.