42. (1950). fundur
42. (1950). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
27.10.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 780/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 20. ágúst 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - neyðarstig almannavarna.
Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og fór yfir þróun faraldursins í þriðju bylgju. Jón Viðar gerði grein fyrir stöðu mála í dag og fór yfir tölulegar upplýsingar um dreifingu, fjölda smita o.fl. Þá gerði Jón Viðar grein fyrir aðgerðum sem nú standa yfir til að hamla útbreiðslu farsóttarinnar. Fram kom hjá Jóni Viðari að samstarf sveitarfélaganna við að samhæfa aðgerðir og tilkynningar til íbúa hafi verið til fyrirmyndar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Bæjarstjóri sagði frá viðbrögðum Sjálandsskóla vegna eineltismála sem hafa verið til umfjöllunar en af hálfu skólans hefur verið send út yfirlýsing vegna málsins. Skólinn vinnur að málinu samkvæmt viðbragðsáætlun Garðabæjar í eineltismálum og þá hefur verið brugðist við með því að efla samstarf við foreldra þeirra nemenda sem hlut eiga að máli. Kallaðir hafa verið til ráðgjafar sérfræðingar í eineltismálum til að styðja við nemendur og starfsfólk skólans.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Gunnar Valur Gíslason, Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Málsnúmer 2006130
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024).
Fjármálastjóri gerði grein fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar og kom fram að öll gögn frá forstöðumönnum og sviðum hafa skilað sér. Fjármálastjóri fór yfir vinnu við útkomuspá ársins 2020 sem þarf að liggja fyrir í aðdraganda framlagningar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021. Farið var yfir helstu forsendur tekjuáætlunar 2021 og breytingar á helstu útgjaldaliðum en þar vegur þyngst hækkun launakostnaðar.
Upplýst er um að fyrir liggur samþykki samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um frestun til framlagningar og afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Stefnt er að því að fyrri umræða um fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 ( 2021-2024) verði á fundi bæjarstjórnar 19. nóvember nk.
Málsnúmer 2010313
03
Bréf Heilbrigðiseftirlitsins varðandi fjárhagsáætlun 2021, dags. 20.10.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.
Gjaldskrá vegna leyfisveitinga, eftirlits og annarrar gjaldskyldrar starfsemi og gjaldskrá vegna hundahalds er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010366
04
Bréf Heilbrigðiseftirlitsins varðandi kaup á færanlegri loftgæðastöð, dags. 21.10.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008563
05
Holtsvegur 55 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita H55 ehf., kt. 681118-0200, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 17 íbúðum að Holtsvegi 55.
Málsnúmer 2004225
06
Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Davíð G. Waage, kt. 280275-3959, leyfi fyrir tengibyggingu við núverandi hús að Krókamýri 18.
Málsnúmer 2007794
07
Urðargata 1-3 - afturköllun byggingarleyfis.
Bæjarráð samþykkir beiðni Byggingafélagins Róta ehf., kt. 700707-0160 um afturköllun byggingarleyfis vegna raðhúsanna við Urðargötu 1, 3 og 5.
Málsnúmer 2009110
08
Goðatún 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ottó Frey Guðmundssyni, kt. 160582-4729, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Goðatúni 12.
Málsnúmer 2010062
09
Hraunsholtsvegur 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Peter Thompkins, kt. 140466-2129, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Hraunsholtsvegi 6.
Málsnúmer 2009028
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði.
Frestað.
Málsnúmer 2006085
11
Afgreiðsla leikskólanefndar varðandi úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla 2020. Alls bárust 4 umsóknir í sjóðinn að fjárhæð kr. 3.833.000. Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 3.120.000 úr sjóðnum til 3 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð leikskóla.
Málsnúmer 2010300
12
Tilkynning heilbrigðisráðuneytisins varðandi áform um endurskoðun laga um málefni aldraðra, dags. 19.10.20.
Lögð fram og vísað til kynningar í öldungaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010316
13
Bréf EBÍ varðandi ágóðahlutagreiðslu 2020, dags. 15.10.20.
Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands þar sem fram kemur að ágóðahluti Garðabæjar árið 2020 er að fjárhæð kr. 2.534.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010353
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, 27. mál., dags. 20.10.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2010355
15
Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um almannatryggingar (hækkun lífeyris), 25. mál., dags. 21.10.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2010354
16
Bréf Alþings varðandi tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 85. mál, dags. 22.10.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2010357
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannatryggingar (skerðing á lífeyri vegna búsetu), 28. mál., dags. 22.10.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2010391
18
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um fjarskipti, 209. mál., dags. 23.10.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2001319
19
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi boðun XXXV. landsþings sveitarfélaga, dags. 16.10.20.
Í bréfinu er boðað til XXXV landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga föstudaginn 18. desember nk. Í ljósi aðstæðna verður landsþingið haldið með fjarfundarbúnaði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2009225
20
Tilkynning Umhverfisstofnunar um útgáfu á starfsleyfi til Sorpu til reksturs gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi, dags. 20.10.20.
Lögð fram.
Málsnúmer 2010294
21
Bréf S.A. varðandi þröngar gangstéttar og snjómokstur, dags. 30.09.20.
Bæjarráð þakkar bréfritara góðar ábendingar og felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010254
22
Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi, dags. 15.10.20.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2010392
23
Bréf Samtakanna 78 varðandi styrk, dags. 22.10.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010255
24