Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (1950). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Davíð G. Waage, kt. 280275-3959, leyfi fyrir tengibyggingu við núverandi hús að Krókamýri 18.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
6. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum og því var byggingarleyfi grenndarkynnt í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
4. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir tengibyggingu milli íbúðarhúss og bifreiðargeymslu. Bifreiðargeymsla er sambyggð bifreiðargeymslu aðliggjandi lóðar með eldvarnarvegg á milli. Í deiliskipulagi Hofstaðamýrar er gert ráð fyrir því að bifreiðargeymslur séu stakstæðar á þessum stað. Vísað til grenndarkynningar þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi. Grenndarkynna skal eigendum Fífumýrar 15 og Krókamýrar 16, 20, 32 og 34.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.