6. fundur
6. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.06.2020
Kl. 14:00 - 15:05
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2004426
01
Bjarnastaðavör 2A - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram byggingarleyfisuppdrættir að einbýlishúsi að Bjarnastaðavör 2a. Ekki er kveðið sérstaklega á um þakgerð í skipulagsskilmálum en kveðið á um 5 metra mænishæð sem túlkast svo að sú hæðarskilgreining miði við hallandi eða uppbrotið þak. Í markmiðum deiliskipulagsins er kveðið á um að samræma skuli uppbyggingu við núverandi byggð. 5 m vegghæð myndi ganga gegn því markmiði. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að þak sé flatt á meðan að vegghæð húss er ekki hærri en 3,5 m. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2005183
02
Hákotsvör 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn af breytingum á íbúðarhúsinu að Hákotsvör 8. Ekkert deiliskipuag er í gildi fyrir Hákotsvör.
Breytingartillaga gerir ráð fyrir viðbyggingu sem nær rúma 7 metra frá húsvegg til norðurs.
Grenndarkynning fór fram árið 2017 en þar var tekið fram að viðbygging væri í flútti við norðurvegg húss númer 10.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar að nýju sem byggingarleyfi í byggð án deiliskipulags sbr. 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Hákotsvarar 5,6,7,10 og 11. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2005044
03
Aratún 6 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á bílageymslu. Hæðarkóti bílageymslunnar sem fyrir er er 8,5 cm neðar en gólfkóti íbúðarhúss. Miða skal við hæðarkóta núverandi bílageymslu þegar hámarkshæð er ákvörðuð.
Samkvæmt tillögu er hæð bílageymslu 3,2 m og því í samræmi við deiliskipulag. Hámarkshæðin sem miðar við gólfkóta sem er 8,5 cm neðar en gólfkóti íbúðarhússins gildir einnig fyrir önnur rými sem eru í sama húshluta. Byggingarreitur samkvæmt deiliskipulagi nær að lóðarmörkum. Að mati skipulagsstjóra er tillagan því í samræmi við deiliskipulag Silfurtúns. Umsækjanda er bent á að kynna byggingarleyfið og fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir eigenda aðliggjandi lóðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2006080
04
Goðatún 12 - Endurbygging bílskúrs - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Í skilmálum Silfurtúns er kveðið skýrt á um það að bílageymslur sem séu endurbyggðar á sama stað þar sem þær stóðu áður og eru utan byggarreits skuli í hvívetna fylgja stærð og hæð bílageymslunnar sem fyrir er.
Það er hinsvegar ljóst að bílageymsla verður ekki byggð innan byggingarreits á meðan að núverandi hús stendur.
Svar skipulagsstjóra er því að tillögu sem gerir ráð fyrir bílageymslu sem er stærri en sú sem nú stendur verður að vísa til grenndarkynningar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2004225
05
Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum og því var byggingarleyfi grenndarkynnt í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2006053
06
Kinnargata 39-41, Stigi af 2 hæð niður í garð - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Eins og fram kemur í grein 4.7.4. í skilmálum Urriðaholts Austurhluta þá eru opnar útitröppur heimilaðar utan byggingarreits. Svar við því atriði er því jákvætt. Varðandi útfærslu lóðar og fjölda íbúða vísast til umsagnar deiliskipulagshöfundar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2005211
07
Mosagata 4 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar Arkís ehf. Skipulagsstjóri tekur undir niðurstöðu umsagnar. Svarið er því neikvætt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2005246
08
Bæjargata 1 - lóð
Lögð fram tillaga og fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu skjólveggja og girðinga á lóð. Áður hafði borist tillaga sem vísað var til umsagnar deiliskipulaghöfundar sem gerði athugasemd við útfærsluna. Nú er lögð fram ný tillaga þar sem komið hefur verið til móts við athugasemdirnar. Umsögn deiliskipulagshöfundar um nýja tillögu er sú að tillagan er í samræmi við deiliskipulag. Skipulagsstjóri tekur undir umsögn deiliskipulaghöfundar og gerir ekki athugasemd við útfærsluna. Bent skal á að senda skal inn lóðaruppdrátt arkitekts samkvæmt ákvæðum deiliskipulags ássamt samþykki annara eigenda fjölleignahússins.Athuga þarf misræmi á uppdráttum í eignaskiptayfirlýsinngu og á síðustu samþykktu byggingarleyfisuppdráttum. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2003169
09
Marargrund 14 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við hæð og útfærslu girðingar að götu. Sömuleiðis gerir hann ekki athugasemd við hæð girðingar á mörkum að Bólstað á meðan að samþykki eigenda Bólstaðar liggur fyrir. Bent er á að í afgreiðslu þessa máls er ekki tekin afstaða til bílageymslu sem sýnd er á uppdrætti né staks bílastæðis í suðvesturhorni lóðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2005418
10
Litlabæjarvör 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar 4.apríl síðastliðinn um byggingarleyfisumsókn að Litlubæjarvör 19 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að þakskyggni nái út fyrir byggingarreit.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.