Beint í efni

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás

Málsnúmer 2010333

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (889). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. laganna vegna svæðis við Brekkuás. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og senda tillöguna til afgreiðslu Skipulagsstofnunar. (Mál nr. 2010333)

Bæjarráð Garðabæjar

02

32 (1990). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. laganna vegna svæðis við Brekkuás. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og senda tillöguna til afgreiðslu Skipulagsstofnunar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni auglýsingu í samræmi við 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkunareitur 2.06 S Brekkuás breytist í 2.06 Íb sem er breyting úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðarbyggð.
Tillagan var í auglýsingu frá 7.maí til 18.júní 2021. Alls bárust 7 erindi innan athugasemdafrests þar sem athugasemdir eru gerðar við tillöguna og við tillögu að breytingu deiliskipulags sem nær til sama svæðis. Athugasemdir lagðar fram.
Lögð fram tillaga að greinargerð þar sem fram koma svör Garðabæjar við þeim athugasemdum sem borist hafa. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða greinargerð.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr.32.greinar Skipulagslaga nr.123/2010.


Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytingar á landnotkun fyrir búsetukjarna eftir auglýsingu. Innsendar athugasemdir lagðar fram. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrvinnslu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breyttrar landnotkunar á reit 2.06 við Brekkuás sem breytist úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðabyggð. (Mál nr. 2010333)

Bæjarráð Garðabæjar

06

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breyttrar landnotkunar á reit 2.06 við Brekkuás sem breytist úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðabyggð.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni forkynningu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa á meðan á forkynningu stóð.
Þar koma fram óskir um að umrætt svæði við Brekkuás verði skilgreint sem grænt opið svæði.
Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkunareitur 2.06 S Brekkuás breytist í 2.06 Íb sem er breyting úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd áréttar mikilvægi þess að starfsemi búsetukjarna fyrir fatlað fólk verði valinn góður staður og óbyggða svæðið ofan Brekkuás uppfyllir þau skilyrði með ágætum. Sú tillaga að breyta svæði fyrir leikskóla í einnar hæðar fjölbýlishús og leiksvæði sé ekki íþyngjandi fyrir nágrennið né líklegt að það dragi úr verði aðliggjandi fasteigna.
Skiplagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 31.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr.3.mgr.30.greinar sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til lóðarinnar við Brekkuás 2. Tillagan gerir ráð fyrir að landnotkunarreitur svæðisins þar sem lóðin er breytist úr 2.06-S samfélagsþjónusta í 2.06-Íb íbúðarsvæði vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Tillagan skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal einnig kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
Samhliða skal kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna sömu lóðar. (Mál nr. 2010333)

Bæjarráð Garðabæjar

09

2. (1960). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til lóðarinnar við Brekkuás 2. Tillagan gerir ráð fyrir að landnotkunarreitur svæðisins þar sem lóðin er breytist úr 2.06-S samfélagsþjónusta í 2.06-Íb íbúðarsvæði vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Tillagan skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal einnig kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
Samhliða skal kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholti vestra vegna lóðarinnar við Brekkuás 2.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að landnotkunareitur 2.06 S Brekkuás breytist í 2.06 Íb sem er breyting úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðarbyggð í samræmi við áður samþykkta skipulagslýsingu sem hefur verið auglýst. Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa við lýsinguna. Markmið breytingarinnar er að skapa grundvöll fyrir deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að leiksskólalóð breytist í einnar hæðar fjölbýlishúsalóð sem ætluð er búsetukjarna fyrir fatlaða. Í ábendingum sem komið hafa fram hjá nágrönnum kemur fram sú ósk að svæðið verði skilgreint sem opið svæði eins og það hefur verið í raun frá því að hverfið byggðist. Skipulagsnefnd ítrekar mikilvægi þess að búsetuúrræðum verði fundinn góður staður í íbúðarbyggð og óbyggða svæðið við Brekkuás uppfyllir þau skilyrði mjög vel. Nýverið hefur verið gert ráð fyrir leikskóla á lóð við Lyngás og þannig hugað að þeirri þjónustu í Ásahverfi þar sem fyrir er leikskóli. Skipulagsnefnd samþykkir forkynningu tillögunnar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

11

50. (1958). fundur

Lögð fram.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

13. fundur

Lögð fram verkefnislýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að reitur fyrir samfélagsþjónustu 2.06 S sameinist reit fyrir íbúðarbyggð 2.04 Íb. Verkefnislýsingin hefur verið auglýst og kallað eftir umsögnum. Lagðar fram þær umsagnir og ábendingar sem borist hafa við verkefnislýsingu sem hefur verið auglýst. Umsögnum og ábendingum vísað til úrvinnslu breytingartillögunnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis við Brekkuás. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi. (Mál nr. 2010333)

Bæjarráð Garðabæjar

14

43. (1951). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis við Brekkuás. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

11. fundur

Lögð fram tillaga að lýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að reitur fyrir samfélagsþjónustu 2.06 S sameinist reit fyrir íbúðarbyggð 2.04 Íb. Tillagan verði auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir að leikskólalóð breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.