32 (22-26). fundur
32 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
14.01.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - varamaður
- Eyþór Eðvarðsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2505501
01
Almyrkvi á sólu
Sævar Helgi Bragason kynnti almyrkvann sem verður sjáanlegur frá Íslandi 12. ágúst 2026. Hægt verður að sjá almyrkvann frá Álftanesi í 1 mínútu og 9 sekúndur sem er lengsti tíminn á höfuðborgarsvæðinu.
Málsnúmer 2010080
02
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til Garðahverfis.
Málsnúmer 2010078
03
Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis.
Málsnúmer 2501034
04
Gámar fyrir flugeldarusl
Dagana 1.-7. janúar var hægt að fara með flugeldarusl í þar til merkta gáma sem voru staðsettir á fjórum stöðum í bænum. Íbúar Garðabæjar voru hvattir til að hjálpast að við að hreinsa upp flugeldarusl og koma því á réttan stað. Íbúar voru duglegir að nýta sér gámana.