Beint í efni

Tillaga um uppsögn samnings um sorphirðu og undirbúning nýs útboðs.

Málsnúmer 2009072

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

48. (2101). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um uppsögn samnings við Íslenska gámafélagið ehf., kt. 470596-2289 með sex mánaða fyrirvara miðað við 31. desember 2023. Jafnframt samþykkir bæjarráð að unnið verði að undirbúningi nýs útboðs sorphirðu frá heimilum í Garðabæ og að nýr samningur taki gildi frá og með 1. júlí 2024.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (927). fundur

Bæjarstjórn samþykkir viðauka við samning við Íslenska gámafélagið um sorphirðu í Garðabæ með gildistíma til 30. júní 2024.“ (Mál nr. 2009072)

Bæjarráð Garðabæjar

03

35. (2088). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Íslenska gámafélagið um sorphirðu í Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

04

16. (1974). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í sorphirðu í Garðabæ.

Fljótavík ehf. kr. 468.646.000
Íslenska gámafélagið ehf. kr. 267.140.000
Kubbur ehf. kr. 332.171.283
Terra ehf. kr. 301.174.283

Kostnaðaráætlun kr. 297.276.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Íslenska gámafélagsins ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

30. fundur

Drög af útboðsgögn vegna sorphirðuútboðs lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

4. (882). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

07

8. (1966). fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti útboðslýsingu vegna sorphirðu í Garðabæ en núverandi samningur rennur út 1. júlí 2021.

Bæjarráð samþykkir að auglýst verði útboð sorphirðu í Garðabæ en um er að ræða sameiginlegt útboð með Mosfellsbæ.