Beint í efni

30. fundur

10.03.2021
Umhverfisnefnd Garðabæjar

30. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

10.03.2021

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
  • Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
  • Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2102073

01

Umsögn um drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfisins - Breyting á úrgangslöggjöf

Lagt fram.

Málsnúmer 1907242

02

Tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammaáætlunar - Brennisteinsfjöll

Lagt fram.

Málsnúmer 1701151

03

Uppgræðsla á beitarhólfi í Krísuvík

Frá Landgræðslu ríkisins barst áfangaskýrsla um uppgræðslu í beitarhólfi í Krísuvík árið 2020 og áætlun fyrir árið 2021 ásamt styrkbeiðni. Umhverfisnefnd samþykkir styrkbeiðnina.

Málsnúmer 2103110

04

Loftgæði umhverfisvöktun

Tvær skýrslur sem Efnagreining á Keldnaholti vann fyrir heilbrigðiseftirlitið lagðar fram. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að loftgæðamælingar verði hafnar í Garðabæ og að samstarfi verði komið á við SSH um samræmdar loftgæðamælingar á höfuðborgarsvæðinu.

Málsnúmer 2103161

05

Umgengisreglur í friðlandi

Linda Björk Jóhannsdóttir kynnti ábendingar sem Garðabær hefur fengið og mikilvægi þess að gera umgengnisreglur í friðlöndum í Garðabæ aðgengilegar.

Málsnúmer 2103164

06

Hreinsunarátak 2021

Umhverfisnefnd leggur til að hreinsunarátakið og vorhreinsun lóða verði með sama sniði og undanfarin ár.

Málsnúmer 2009072

07

Sorphirða í Garðabæ

Drög af útboðsgögn vegna sorphirðuútboðs lögð fram.

Málsnúmer 2103179

08

Yrkjugróðursetning Skógræktarfélagið

Erindi skógræktarfélags Garðabæjar um vöntun á landsvæði til yrki gróðursetningar lagt fram. Umhverfisnefnd mun leitast við að fundið verði landsvæði fyrir yrki gróðursetningar..