Beint í efni

8. (1966). fundur

02.03.2021
Bæjarráð Garðabæjar

8. (1966). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

02.03.2021

Kl. 08:00 - 09:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2102490

01

Jarðskjálftahrina á Reykjanesi - hættustig almannavarna.

Á fund bæjarráð mætti undir dagskrárliðum 1 og 2 Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna. Gerði Jón Viðar grein fyrir stöðu mála varðandi viðbrögð við jarðskjálftum á Reykjanesi og fór yfir hugsanlegar sviðsmyndir en hættustigi almannavarna vegna jarðskjálftanna á Reykjanesi var lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 24. febrúar sl.

Viðbragðs- og rýmingaráætlun vegna jarðskjálfta á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kynnt og tekin fyrir á fundum almannavarnarnefndar og verið er að endurskoða áhættumat. Almannavarnarnefnd hefur í samstarfi við Veitur hugað sérstaklega að aukinni vöktun neysluvatns á höfuðborgarsvæðinu.

Jón Viðar lagði áherslu á að huga vel að lausum búnaði í húsakynnum stofnana og öðrum atriðum sem geta valdið slysum á fólki og skemmdum á mannvirkjum.

Bæjarfulltrúi, Sara Dögg Svanhildardóttir sat fund bæjarráðs undir dagskráliðum 1, 2, 3, 4 og 5 og bæjarfulltrúi, Jóna Sæmundsdóttir, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 3.

Málsnúmer 2001444

02

COVID19 - hættustig almannavarna

Jón Viðar fór yfir þróun farsóttarinnar frá upphafi og stöðuna í dag og gerði grein fyrir samantekt sem gerð hefur verið fyrir almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins og kynnt sveitarfélögunum.

Nýjar reglur um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmarkanir á skólastarfi tóku gildi 24. febrúar sl. og gilda til 17. mars nk. og 30. apríl nk.

Samkvæmt hinum nýju reglum eru almenn fjöldatakmörk 50 manns en í skólum eru fjöldatakmörk 150.

Bæjarstjóri upplýsti að starfsemin á bæjarskrifstofunum verður ekki lengur hólfaskipt og starfsmenn kallaðir í hús með einhverjum frávikum. Áfram verður viðhöfð sú regla að gestir komi ekki til fundar á 3. hæð skrifstofunnar og þá verður haldið áfram að nota fjarfundabúnað vegna funda þar sem það hentar og er til hagræðingar.

Málsnúmer 2010078

03

Garðahverfi - kynning á skipulagi.

Á fund bæjarráð komu Halldóra Hreggviðsdóttir og Herborg Árnadóttir starfsmenn ráðgjafafyrirtækisins Alta og kynntu hugmyndafræði og þróun skipulags í Garðahverfi. Farið var yfir markmið skipulagsins, stefnur og skilmála, gerð grein fyrir svæðinu sem verndarsvæði í byggð og hugmyndum um uppbyggingu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2102536

04

Minnisblað varðandi verkefni í stafrænni þróun.

Á fund bæjarráð kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri stafrænna verkefna hjá Garðabæ og gerði grein fyrir greiningu á stafrænun tækifærum hjá Garðabæ og minnisblaði með hugmyndum um verkefni í stafrænni þróun.

Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaðinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008661

05

Frumdrög að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar.

Í framhaldi af lokun Garðahraunsvegar við Herjólfsbraut samkvæmt samþykktu deiliskipulagi samþykkti bæjarráð 14. júlí 2020 að vinna í samstarfi við Vegagerðina að endurhönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar til að bæta umferðaröryggi.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda, gerði grein fyrir frumdrögum að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar og frumdrög að kostnaðaráætlun að fjárhæð kr. 250,0 mkr.

Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið að málinu og teknar upp viðræður við Vegagerðina um nánari útfærslu á framkvæmdinni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011525

06

Hraungata 25-29 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita PK Byggingum ehf., kt. 530307-2200, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 15 íbúðum að Hraungötu 25 - 29.

Málsnúmer 2012075

07

Urriðaholtsstræti 42 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Urriðaholtsstræti 42.

Málsnúmer 1810062

08

Umsókn Bjarg íbúðafélags um stofnframlag vegna viðbótaríbúða.

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 23. júní 2020 var samþykkt umsókn Bjargs íbúafélags hses. um stofnframlag að fjárhæð kr. 85.118.012 sbr. umsókn félagsins um byggingu 17 almennra íbúða að Maríugötu 5 þar sem stofnvirði verkefnisins er kr. 709.316.763.

Bæjarráð samþykkir nú umsókn félagsins um stofnframlag að fjárhæð kr. 24.614.966 sem er 12% framlag af stofnvirði vegna fjölgunar íbúða um fimm. Greiðslu vegna stofnframlags verður skuldajafnað á móti lóðarverði og hluta gatnagerðargjalda.

Málsnúmer 2102381

09

Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi tillögu til þingsályktunar um lýðheilsustefnu, dags. 19.02.21.

Lögð fram og vísað til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði

Málsnúmer 2102430

10

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um stjórnarskipunarlög (kosningaaldur), 188. mál, dags. 22.02.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2102431

11

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (kristinfræðikennsla), 141. mál., dags. 23.02.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2102447

12

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um hafnalög (EES-reglur, gjaldtaka, rafræn vöktun), 509. mál., dags. 23.02.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2102473

13

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um málefni innflytjenda (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð), 452. mál., dags. 24.02.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2102454

14

Bréf Reykjavíkur varðandi forkynningu á vinnslutillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna Borgarlínu, dags. 19.02.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2009072

15

Útboð sorphirðu í Garðabæ 2021.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti útboðslýsingu vegna sorphirðu í Garðabæ en núverandi samningur rennur út 1. júlí 2021.

Bæjarráð samþykkir að auglýst verði útboð sorphirðu í Garðabæ en um er að ræða sameiginlegt útboð með Mosfellsbæ.

Málsnúmer 2102507

16

Samningur Dengsa ehf og Garðabæjar um biðskýli.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, gerði grein fyrir samningi við Dengsa ehf. um biðskýli í Garðabæ.

Bæjarráð samþykkir samning við Dengsa ehf. um biðskýli en um er að ræða yfirtöku á samningi sem áður var samþykktur við AFA JCDecaux á Íslandi. Fyrir liggur yfirlýsing þess fyrirtækisins um niðurfellingu samningsins.

Málsnúmer 2102502

17

Bréf UMFÍ um mikilvægi þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi, dags. í febrúar 2021.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og til kynningar í skólunum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2102537

18

Áskorun Hundaræktarfélags Íslands og Félags ábyrgra hundaeigenda um innflutning og þjálfun leiðsöguhunda, dags. 25.02.21.

Lögð frm.

Fylgiskjöl