Jarðskjálftar og eldsumbrot á Reykjanesi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
8. (1966). fundur
Á fund bæjarráð mætti undir dagskrárliðum 1 og 2 Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna. Gerði Jón Viðar grein fyrir stöðu mála varðandi viðbrögð við jarðskjálftum á Reykjanesi og fór yfir hugsanlegar sviðsmyndir en hættustigi almannavarna vegna jarðskjálftanna á Reykjanesi var lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 24. febrúar sl.
Viðbragðs- og rýmingaráætlun vegna jarðskjálfta á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kynnt og tekin fyrir á fundum almannavarnarnefndar og verið er að endurskoða áhættumat. Almannavarnarnefnd hefur í samstarfi við Veitur hugað sérstaklega að aukinni vöktun neysluvatns á höfuðborgarsvæðinu.
Jón Viðar lagði áherslu á að huga vel að lausum búnaði í húsakynnum stofnana og öðrum atriðum sem geta valdið slysum á fólki og skemmdum á mannvirkjum.
Bæjarfulltrúi, Sara Dögg Svanhildardóttir sat fund bæjarráðs undir dagskráliðum 1, 2, 3, 4 og 5 og bæjarfulltrúi, Jóna Sæmundsdóttir, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 3.