Yfirferð tilboðs um viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (1977). fundur
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir yfirferð á tilboði Tinnubergs ehf. í viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ. Tilboðið var lagt fram á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. maí sl. og þá samþykkt með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við verktakann á grundvelli tilboðs hans.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1974). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ.
Stjörnugarðar ehf. kr. 30.000.000
Tinnuberg ehf. kr. 27.335.000
Reykjaverk ehf. kr. 106.576.760
Berg verktakar ehf. kr. 36.400.000
Mostak ehf. kr. 29.894.000
Vargur ehf. kr. 50.972.000
Alma verk ehf. kr. 49.850.000
Kostnaðaráætlun kr. 35.605.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Tinnubergs ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.