Beint í efni

19. (1977). fundur

25.05.2021
Bæjarráð Garðabæjar

19. (1977). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

25.05.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2104091

01

Eskiás 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Framkvæmdafélaginu Eskiási hf., leyfi til að byggja fjölbýlishús með 35 íbúðum á lóðinni við Eskiás 1.

Málsnúmer 2101238

02

Lindarflöt 10 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þórarni Ingólfssyni, kt. 130463-4529, leyfi fyrir breytingum og viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni við Lindarflöt 10.

Málsnúmer 2006240

03

Yfirferð tilboðs um viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir yfirferð á tilboði Tinnubergs ehf. í viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ. Tilboðið var lagt fram á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. maí sl. og þá samþykkt með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins.

Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við verktakann á grundvelli tilboðs hans.

Málsnúmer 2006646

04

Bréf Kópavogs varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Glaðheima, dags. 12.05.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105322

05

Bréf Sigríðar Örnu Arnþórsdóttur varðandi skipulag á Álftanesi, dags. 17.05.21.

Í bréfinu eru gerðar athugasemdir og settar fram ábendingar varðandi framkvæmd og kynningu skipulagsmála á Álftanesi ásamt því að óska eftir upplýsingum um einstök atriði.

Bæjarráð þakkar framkomnar athugasemdir og ábendingar og felur bæjarstjóra að svara bréfinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1902106

06

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu fulltrúa í samstarfshóp vegna undirbúnings friðlýsingar Bessastaðaness, dags. 29.04.21.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðbjörgu Brá Gísladóttur, deildarstjóra umhverfis og framkvæmda sem fulltrúa Garðabæjar í samstarfshóp til að vinna að undirbúningi friðlýsingar Bessastaðaness.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1904302

07

Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi gjaldskrár vatnsveitna, dags. 07.05.21.

Í bréfinu, sem sent er til allra sveitarfélaga, er farið fram á að gjaldskrár vatnsveitna sveitarfélaga verði yfirfarnar og ráðuneytið upplýst um niðurstöðu málsins.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að yfirfara gjaldskrá vatnsveitu Garðabæjar í samræmi við leiðbeiningar ráðuneytisins og upplýsa ráðuneytið um niðurstöðu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2103568

08

Minnisblöð Strætó bs. varðandi tillögur til úrbóta á leið 23, lenging leiðar 22 að Vetrarmýri, dags. 12.05.21 og 21.05.21.

Lögð fram minnisblöð frá Strætó varðandi leið 23 og leið 22.

Í minnisblaði varðandi leið 23 er bent á að leiðin sé oft of sein og lagt er til að leiðin verði stytt til að ekki þurfi að minnka tíðnina á leiðinni.

Í minniblaði varðandi leið 22 eru kynntar tillögur um að lengja leiðina þannig að hún geti veitt þjónustu fyrir gesti fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri sem verður tekið í notkun í upphafi árs 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105379

09

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis, 612. mál., dags. 18.05.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2105382

10

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál., dags. 19.05.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2105383

11

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um nýja velferðarstefnu fyrir aldraða, 720. mál., dags. 19.05.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 1711191

12

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi upplýsingar um framkvæmd umbóta í Flataskóla, dags. 03.05.21.

Bæjarráð felur fræðslu- og menningarsviði að hlutast til um að ráðuneytinu berist upplýsingar um framkvæmd umbóta sem áætlaðar voru í umbótaráætlun skólans á skólaárinu 2020-2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2103064

13

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundráðs varðandi samning um Stjörnuhlaupið 2021.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs um að gera samstarfssamning við Stjörnuna um Stjörnuhlaupið. Samningurinn er til þriggja ára og er árlegt framlag kr. 800.000.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2102182

14

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi endurnýjun samnings við Bessastaðsókn.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs um að gera samstarfssamning við Bessastaðasókn um framkvæmd æskulýðsstarfs. Samningurinn er til tveggja ára og er árlegt framlag kr. 3.000.000.

Málsnúmer 2001317

15

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi endurnýjun samnings við KFG.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs um að gera samstarfssamning við KFG (Knattspyrnufélag Garðabæjar) um rekstrarstyrk. Samningurinn er til tveggja ára og er árlegt framlag kr. 1.000.000.

Málsnúmer 2105420

16

Fyrirspurn varðandi áætlun eða mat um endurskoðun á stefnum bæjarins.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2104508

17

Svar við fyrirspurn um nýtingu strætó.