Beint í efni

Almenningssamgöngur í Garðabæ - leið 22 og leið 23.

Málsnúmer 2103568

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

22. (1980). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við Strætó bs. varðandi útfærslu á tillögum um breytingar á leið 22 og leið 23.

Bæjarstjóri upplýsti að verið er að skoða mögulegar breytingar á akstri frístundabílsins.

Bæjarráð leggur áherslu á að allar breytingar á leiðakerfinu verði kynntar með ítarlegum hætti fyrir íbúum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

19. (1977). fundur

Lögð fram minnisblöð frá Strætó varðandi leið 23 og leið 22.

Í minnisblaði varðandi leið 23 er bent á að leiðin sé oft of sein og lagt er til að leiðin verði stytt til að ekki þurfi að minnka tíðnina á leiðinni.

Í minniblaði varðandi leið 22 eru kynntar tillögur um að lengja leiðina þannig að hún geti veitt þjónustu fyrir gesti fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri sem verður tekið í notkun í upphafi árs 2022.

Fylgiskjöl