Rekstrarstyrkir KFG
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
19. fundur
Ósk frá KFG um 1 milljón í viðbótar styrk vegna aukinna útgjalda við ferðalög innanlands í deildarkeppni árið 2023.
ÍTG samþykkir 1 milljón króna viðbótar framlag til KFG vegna óvæntra aukinna útgjalda við ferðalög innanlands í deildarkeppni árið 2023.
Bæjarráð Garðabæjar
02
19. (1977). fundur
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs um að gera samstarfssamning við KFG (Knattspyrnufélag Garðabæjar) um rekstrarstyrk. Samningurinn er til tveggja ára og er árlegt framlag kr. 1.000.000.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
31. fundur
Endurnýjun samnings við KFG 2021 til 2023
Samþykkt var að endurnýja samning við KFG til næstu tveggja ára og veita félaginu árlega kr. 1.000.000,- Formanni var falið að klára samninginn. Öðrum erindum félagsins er vísað til sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs til úrlausnar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
29. fundur
Ósk KFG vegna rekstrarstyrks og erindis frá 2020
Formanni og íþróttafulltrúa falið að skoða málið nánar og óska eftir upplýsingum um fjárhag félagsins fyrir árið 2020.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
23. fundur
Ósk KFG um stuðning vegna skuldar við KSÍ frá 2019.
Afgreiðslu erindisins um viðbótar styrk frestað til sameiginlegrar umræðu um fjárhagsvanda íþróttafélaga við gerð fjárhagsáætlunar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
06
17. fundur
KFG óskar eftir að fá áframhaldandi viðbótarstyrk vegna rekstrar knattspyrnuflokks í deildarkeppni KSÍ 2020.
ÍTG óskar eftir að KFG skili ársreikningi 2019 eins og kveðið er á um í samsstarfssamningi, áður en ákvörðun er tekin um viðbótarstyrk vegna ársins 2020.