Beint í efni

19. fundur

23.08.2023
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

19. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

23.08.2023

Kl. 08:00 - 09:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Svanur Þorvaldsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2308439

01

Starfsáætlun ÍTG 2023-2024

Tilgangur starfsáætlunar íþrótta- og tómstundaráðs er að tryggja að tímasetja helstu verkefni á nefndarfundum, til að skipuleggja mætingu utanaðkomandi aðila á fundi og undirbúning funda nefndarinnar.

Gera má ráð fyrir að reglubundnir nefndarfundir séu haldnir 8-10 sinnum á ári, 4-5 fundir að vori og 4-5 að hausti. Sumarfrí verður í júlí. Að öllu jöfnu verði fundað annan miðvikudag í mánuði klukkan 08:00.

Frekari upplýsingar um fundi og fundarsköp nefndarinnar er að finna í III. kafla samþykktar um stjórn Garðabæjar.

Kynnt dagskrá hér er ekki tæmandi og getur tekið breytingum.

Starfsáætlun ÍTG fyrir veturinn 2023-2024 var lögð fram og samþykkt. Áhersla verður á að fá kynningar frá mismunandi félögum í vetur.

Tilgangur starfsáætlunar íþrótta- og tómstundaráðs er að tryggja að tímasetja helstu verkefni á nefndarfundum, til að skipuleggja mætingu utanaðkomandi aðila á fundi og undirbúning funda nefndarinnar.

Gera má ráð fyrir að reglubundnir nefndarfundir séu haldnir 8-10 sinnum á ári, 4-5 fundir að vori og 4-5 að hausti. Sumarfrí verður í júlí. Að öllu jöfnu verði fundað annan miðvikudag í mánuði klukkan 08:00.

Frekari upplýsingar um fundi og fundarsköp nefndarinnar er að finna í III. kafla samþykktar um stjórn Garðabæjar.

Dagskráin er ekki tæmandi og getur tekið breytingum.

Málsnúmer 2303127

02

Golfklúbburinnn Oddur 2023

ÍTG sendir hamingju óskir til Golfklúbbsins Odds vegna vel heppnaðs Íslandsmót í höggleik á Urriðavelli.

ÍTG sendir hamingju óskir til Golfklúbbsins Odds vegna vel heppnaðs Íslandsmót í höggleik á Urriðavelli.

Málsnúmer 2301007

03

Afreksstyrkir 2023

Afreksstyrkir Garðabæjar hafa nú verið auglýstir opnir til umsóknar á vef bæjarins. Um er að ræða aðra úthlutun á árinu 2023 samkvæmt Afrekssíþróttastefnu bæjarins sem samþykkt var í vor.

Afreksstyrkir Garðabæjar hafa nú verið auglýstir opnir til umsóknar til 4. september á vef bæjarins. Um er að ræða aðra úthlutun á árinu 2023 samkvæmt Afrekssíþróttastefnu bæjarins sem samþykkt var í vor.

Málsnúmer 2001317

04

Rekstrarstyrkir KFG

Ósk frá KFG um 1 milljón í viðbótar styrk vegna aukinna útgjalda við ferðalög innanlands í deildarkeppni árið 2023.

ÍTG samþykkir 1 milljón króna viðbótar framlag til KFG vegna óvæntra aukinna útgjalda við ferðalög innanlands í deildarkeppni árið 2023.

Málsnúmer 1804338

05

Frisbígolf útileikvöllur

Í undirbúningi er að taka stærra svæði við Vífilsstaði undir frisbívöllinn þannig að hann beri í heildina 18 holur til keppni ef svo ber undir.

Drög að þeirri stækkun fylgir hér.

Sá völlur verður opinn almenningi til notkunar allt sumarið /árið eins og sá völlur sem þar er núna.

Stækkun vallarins er í austur átt inn á reit sem Hestamannafélagið Sóti hefur haft til afnota en lánað afram til reiðaskólans sem "hvíldarsvæði" reiðskólahestanna. Samningur við Sóta er ekki lengur í gildi og því upplagt tækifæri til að stækka þennan frábæra frisbívöll upp í 18 "holur". Kostnaður við þessa stækkun er um 3 milljónir króna.

ÍTG leggur til við bæjarstjórn að taka stærra svæði við Vífilsstaði undir frisbívöllinn þannig að hann beri í heildina 18 holur til keppni ef svo ber undir.

Drög að þeirri stækkun fylgir hér.

Sá völlur verður opinn almenningi til notkunar allt sumarið /árið eins og sá völlur sem þar er núna.

Stækkun vallarins er í austur átt inn á reit sem Hestamannafélagið Sóti hefur haft til afnota en lánað afram til reiðaskólans sem "hvíldarsvæði" reiðskólahestanna. Samningur við Sóta er ekki lengur í gildi og því tækifæri til að stækka þennan frábæra frisbívöll upp í 18 "holur". Kostnaður við þessa stækkun er um 3 milljónir króna.

Málsnúmer 2306576

06

Upplýsingabréf Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir íþrótta- og tómstundastarf.

Samband íslenskra sveitarfélaga í samvinnu við fleiri aðila hefur gefið út upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka sem ætlað er að minna á ábyrgðina sem við berum öll saman þegar kemur að því að koma í veg fyrir ofbeldi.

Upplýsingunum hefur verið komið áfram til íþrótta- og tómstundafélaga í Garðabæ.

Samband íslenskra sveitarfélaga í samvinnu við fleiri aðila hefur gefið út upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka sem ætlað er að minna á ábyrgðina sem við berum öll saman þegar kemur að því að koma í veg fyrir ofbeldi.

Upplýsingunum hefur verið komið áfram til íþrótta- og tómstundafélaga í Garðabæ.

Málsnúmer 2306184

07

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur til Bjarka Steinars Gunnþórssonar kr 20.000,- vegna ferða U16 með KKÍ á NM í Finnlandi 27. júní 2023

ÍTG samþykkir ferðastyrk til Bjarka Steinars Gunnþórssonar kr 20.000,- vegna ferða U16 með KKÍ á NM í Finnlandi 27. júní 2023

Málsnúmer 2306201

08

Ethel Gyða Bjarnasen - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur að upphæð 20.000,- til Ethelar Gyðu Bjarnasen vegna ferðar HSÍ með U19 kv til Færeyja 9.6. 2023

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Ethelar Gyðu Bjarnasen vegna ferðar HSÍ með U19 kv til Færeyja 9.6. 2023

Málsnúmer 2306226

09

Sigrún Ásta Möller - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur að upphæð kr. 20.000,- til Sigrúnar Ástu Möller vegna keppnisferðar með U15 HSÍ í Færeyjum 9.-12. júní 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Sigrúnar Ástu Möller vegna keppnisferðar með U15 HSÍ í Færeyjum 9.-12. júní 2023.

Málsnúmer 2306460

10

Björn Skúli Birnisson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrk kr. 20.000 til Björns Skúla Birnissonar vegna ferðar KKÍ með U16 á NM í Finnlandi 27.júlí 2023

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Björns Skúla Birnissonar vegna ferðar KKÍ með U16 á NM í Finnlandi 27. júlí 2023

Málsnúmer 2306457

11

Bára Björk Óladóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Báru Bjarkar Óladóttur vegna verkefnis U16 KKÍ í Finnlandi 27.júní til 4. júlí 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Báru Bjarkar Óladóttur vegna verkefnis U16 KKÍ í Finnlandi 27.júní til 4. júlí 2023.

Málsnúmer 2306456

12

Kristján Fannar Ingólfsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Kristjáns Fannars Ingólfssonar vegna NM U18 KKÍ í Svíþjóð 26.júní 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Kristjáns Fannars Ingólfssonar vegna NM U18 KKÍ í Svíþjóð 26.júní 2023.

Málsnúmer 2306455

13

Kristján Fannar Ingólfsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Kristjáns Fannars Ingólfssonar vegna EM U18 KKÍ í Portugal 19. júlí 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Kristjáns Fannars Ingólfssonar vegna EM U18 KKÍ í Portugal 19. júlí 2023.

Málsnúmer 2306424

14

Heiðrún Björg Hlynsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Heiðrúnar Bjargar Hlynsdóttur vegna NM U16 KKÍ í Finnlandi 27.júní 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Heiðrúnar Bjargar Hlynsdóttur vegna NM U16 KKÍ í Finnlandi 27.júní 2023.

Málsnúmer 2306410

15

Þórir Ingi Þorsteinsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Þóris Inga Þorsteinssonar vegna European Open í Svíþjóð 2.-9. júlí 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Þóris Inga Þorsteinssonar vegna HSÍ U16 European Open í Svíþjóð 2.-9. júlí 2023.

Málsnúmer 2307406

16

Elín Vilhjálmsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Elínar Vilhjálmsdóttur vegna ferðar HSÍ með U15 kvenna til Færeyja 9. júní 2023

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Elínar Vilhjálmsdóttur vegna ferðar HSÍ með U15 kvenna til Færeyja 9. júní 2023

Önnur mál: