Beint í efni

Afgreiðsla íþrótta-og tómstundaráðs varðandi stækkun frisbígolfvallar við Vífilsstaði.

Málsnúmer 1804338

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

33. (2086). fundur

Íþrótta- og tómstundaráð leggur til að undirbúið verði að stækka svæði fyrir frisbígolfvöll sem starfræktur hefur verið á opnu svæði við Vífilsstaði undanfarin ár. Fyrir liggur að hluti svæðisins hefur áður verið nýtt sem beitiland fyrir hesta á vegum Reiðskólans Hestlífs sem er starfræktur á íþróttasvæði Spretts á Kjóavöllum, sbr erindi samkvæmt dagskrárlið 12.

Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

19. fundur

Í undirbúningi er að taka stærra svæði við Vífilsstaði undir frisbívöllinn þannig að hann beri í heildina 18 holur til keppni ef svo ber undir.
Drög að þeirri stækkun fylgir hér.
Sá völlur verður opinn almenningi til notkunar allt sumarið /árið eins og sá völlur sem þar er núna.
Stækkun vallarins er í austur átt inn á reit sem Hestamannafélagið Sóti hefur haft til afnota en lánað afram til reiðaskólans sem "hvíldarsvæði" reiðskólahestanna. Samningur við Sóta er ekki lengur í gildi og því upplagt tækifæri til að stækka þennan frábæra frisbívöll upp í 18 "holur". Kostnaður við þessa stækkun er um 3 milljónir króna.

ÍTG leggur til við bæjarstjórn að taka stærra svæði við Vífilsstaði undir frisbívöllinn þannig að hann beri í heildina 18 holur til keppni ef svo ber undir.
Drög að þeirri stækkun fylgir hér.
Sá völlur verður opinn almenningi til notkunar allt sumarið /árið eins og sá völlur sem þar er núna.
Stækkun vallarins er í austur átt inn á reit sem Hestamannafélagið Sóti hefur haft til afnota en lánað afram til reiðaskólans sem "hvíldarsvæði" reiðskólahestanna. Samningur við Sóta er ekki lengur í gildi og því tækifæri til að stækka þennan frábæra frisbívöll upp í 18 "holur". Kostnaður við þessa stækkun er um 3 milljónir króna.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

40. fundur

Áætlanir um gerð 9 holu Frisbygolfvallar í Garðabæ.

Garðabær hefur fest kaup á búnaði fyrir 9 holu frísbígolfvöll. Stefnt er að því að setja hann upp sunnan Vífilsstaða. Haukur Einarsson sérfræðingur um Frisbígolf hefur verið fenginn til að hanna og setja upp teiga og brautir vallarins.