31. fundur
31. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
14.05.2021
Kl. 15:00 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2001317
01
Rekstrarstyrkir KFG
Endurnýjun samnings við KFG 2021 til 2023
Samþykkt var að endurnýja samning við KFG til næstu tveggja ára og veita félaginu árlega kr. 1.000.000,- Formanni var falið að klára samninginn. Öðrum erindum félagsins er vísað til sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs til úrlausnar.
Málsnúmer 2105132
02
Amerískur fótbolti - ósk um styrk til kynningarstarfs
Oskað er eftir 100þ kr til skólakynninga á Amerískum fótbolta í skólum.
Samþykkt að styrkja verkefnið skólakynningar á Amerískum fótbolta í skólum Garðabæjar svo framarlega að skólarnir vilji fá þetta verkefni inn til sín. Greiðsla fer þá eftir fjölda kynninga.
Málsnúmer 2105130
03
Stuðningur við knattspyrnuiðkun innflytjenda
Ósk um stuðning við íþróttastarf innflytjenda frá knattspyrnufélaginu Afríka FC.
ÍTG samþykkir að veita knattspyrnufélaginu Afríka FC. 100.000,- kr. til stuðnings við íþróttastarf innflytjenda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105129
04
2 Heimar Qigong fyrir almenning
Áhuga hópur um bætta andlega líðan verður með Qigong á grasflötinni syðst í Bæjargarðinum á miðvikudögum kl. 11, ca. 50 mín, frá 23. júní til 18. ágúst. Samtals 9 skipti.
Þátttaka er opin öllum og kostar ekkert.
Áhuga hópur um bætta andlega líðan verður með Qigong (Kínverska leikfimi) á grasflötinni syðst í Bæjargarðinum á miðvikudögum kl. 11, ca. 50 mín, frá 23. júní til 18. ágúst 2021. Samtals 9 skipti.
Þátttaka er opin öllum að kostnaðarlausu.
Málsnúmer 2105111
05
Niðurstöður 2021 - Rannsóknir og greining
Niðurstöður R&G varðandi líðan barna í Garðabæ feb 2021
Helstu lykiltölur og áherslupunktar.
Helstu lykiltölur og áherslupunktar í niðurstöðum R&G varðandi líðan barna í Garðabæ feb 2021 voru kynntar og ræddar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105052
06
Folfmót júlí 21
Ósk frá Hauki Páli Finnssyni um að halda Folfmót 10. júlí á Vífilsstaðavelli.
ÍTG samþykkir ósk frá Hauki Páli Finnssyni um að halda Folfmót (frisbígolf) 10. júlí á Vífilsstaðavelli.
Málsnúmer 2104353
07
Forvarnavika Garðabæjar 2021
Undirbúningur forvarnaviku Garðabæjar er nú hafinn. Forvarnavikan verður haldin 13.-20. október 2021 undir kjörorðunum "Virðing og velferð".
Undirbúningur forvarnaviku Garðabæjar er nú hafinn. Forvarnavikan verður haldin 13.-20. október 2021 undir kjörorðunum "Virðing og velferð".
Rætt var um "útivistartíma" og mikilvægi "hvíldartíma" og svefns út frá gögnum R&G sem áður voru kynnt.
Málsnúmer 2105101
08
Tónlist í Garðabæ
Ósk eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðartúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Óskað hefur verið eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðatúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Málið rætt og vísað til skoðunar íþrótta-, tómstunda og forvarnafulltrúa með menningarfulltrúa.
Málsnúmer 2105102
09
Höfuðborgarkort
Tillaga um eitt "aðgangskort" í allar sundlaugar og söfn á höfuðborgarsvæðinu.
Tillaga um eitt "aðgangskort" í allar sundlaugar og söfn á höfuðborgarsvæðinu var rædd. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa falið að kanna hvaða útfærslur eru í boði og ræða málið við aðra rekstraraðila sundlauga á höfuðborgarsvæðinu.
Málsnúmer 2103064
10
Stjörnuhlaupið 2021
Formanni ÍTG er falið að gera áframhaldandi samning við Almenningsíþróttadeild Stjörnunnar til næstu tveggja ára um framkvæmd Stjörnuhlaupsins.
Formanni ÍTG er falið að gera áframhaldandi samning við Almenningsíþróttadeild Stjörnunnar til næstu tveggja ára um framkvæmd Stjörnuhlaupsins. Styrkupphæð verði 800.000,- kr. á ári.
Stjörnuhlaupið 2021 fer fram 29. maí nk. og er ræst kl. 16:00
Samþykkt að taka á dagskrá samning um Stjörnuhlaupið til næstu tveggja ára.