Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Glaðheima í Kópavogi.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi Kópavogs kynnti tillögu að breytingum deiliskipulags vesturhluta Glaðheima sem liggja að bæjarmörkum Garðabæjar norðan Arnarnesvegar og austan Reykjanesbrautar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna en vísar í minnisblað um tillöguna á fyrri stigum sem lagt var fram í nefndinni í ágúst á síðasta ári og sent bæjarskipulag Kópavogs.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Skipulagsnefnd óskar eftir því að fá kynningu á tillögunni á næsta fundi nefndarinnar sem stefnt er að þann 16.júní nk.
Bæjarráð Garðabæjar
04
19. (1977). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
34. (1942). fundur
Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við tillöguna.
Afgreiðsla skipulagsnefndar lögð fram.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Glaðheima í Kópavogi. Lagt fram minnisblað tækni- og umhverfissviðs þar sem lagt er mat á áhrif breytinganna með hliðsjón af hagsmunum Garðabæjar.
Með vísan í framlagt minnisblað gerir skipulagsnefnd engar athugasemdir við tillöguna.
Bæjarráð Garðabæjar
07
28. (1936). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari greining á áhrifum tillögunnar á byggð í Garðabæ sérstaklega m.t.t. til umferðarflæði um Arnarnesveg og Reykjanesbraut.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Glaðheima í Kópavogi. Tillagan er í auglýsingu og frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. ágúst.
Breytingin mun hafa áhrif á umferðarflæði aðliggjandi byggðar, m.a. í fyrirhugaðri og núverandi byggð í Hnoðraholti og vegtengingum við þá byggð frá Arnarnesvegi og Reykjanesbraut. Skipulagsnefnd felur tækni- og umhverfissviði að greina áhrif breytingarinnar á byggð í Garðabæ og leggja fram tillögur að athugasemd við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests.
Bæjarráð Garðabæjar
09
27. (1935). fundur
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.