Beint í efni

27. (1935). fundur

07.07.2020
Bæjarráð Garðabæjar

27. (1935). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

07.07.2020

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

Covid19 - hættustig almannavarna.

Upplýst var um stöðu mála á fjölskyldusviði og varðandi starfsemi vinnuskólans en 50 ungmenni eru í sóttkví og 20 flokkstjórar. Starfsemi skólans hófst á ný síðastliðinn fimmtudag en gera má ráð fyrir einhverjum takmörkunum á starfseminni út þessa viku. Engin ný smit hafa greinst.

Samkvæmt tilkynningum frá heilbrigðisráðuneyti eru óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna Covid19 og fyrirhugaðar eru breyttar reglur vegna skimunar á landamærum.

Málsnúmer 2006518

02

Garðaskóli - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi starfsmannaaðstöðu í Garðaskóla.

Málsnúmer 2006690

03

Tilkynning frá Sveitarfélaginu Ölfuss varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna miðbæjarkjarna.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2006646

04

Tilkynning frá Kópavogi varðandi auglýsingu á tillögu um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Glaðheima, dags. 26.06.20.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2007027

05

Tilkynning frá forsætisráðuneytinu um drög að frumvarpi til breytinga á II. kafla stjórnarskrárinnar um forseta og framkvæmdavald, dags. 01.07.2020.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2007029

06

Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi samgönguáætlun 2020-2034, dags. 30.06.20.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 1912335

07

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í kærumáli er varðar ákvörðun um höfnun á breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.

Í úrskurðarorðum kemur fram að hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 21. nóvember 2019 er varðar höfnun á umsókn um breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2006130

08

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi forsendur fjárhagsáætlana 2021-2024, dags. 02.07.20.

Málsnúmer 2007023

09

Bréf Samtaka iðnaðarins varðandi fræsun og malbikun á höfuðborgarsvæðinu, dags. 01.07.20.

Málsnúmer 2007028

10

Bréf Þjóðskrár Íslands varðandi fasteignamat 2021, dags. 29.06.20.

Lagt fram. Í fylgigögnum kemur fram að heildarfasteignamat í Garðabæ hækkar um 3,5% milli áranna 2020 og 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1805051

11

Fundargerð samráðshóps um stækkun íþróttamiðstöðvar GKG.

Málsnúmer 2007041

12

Bréf Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins varðandi rekstaruppgjör 2019, dags. 02.07.20.

Málsnúmer 2007036

13

Tillaga Garðabæjarlistans um að gerð verði úttekt á húsnæði Unnargrundar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram.

Garðabæjarlistinn leggur til að gerð verði úttekt á Unnargrund þar sem hönnun húsnæðis er metin út frá þjónustuþörf íbúanna. Þannig að bæði rekstraraðili leggi mat á hönnun og fundin verði viðeigandi leið til að fá fram mat íbúa á fyrirkomulagi íbúðakjarnans.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til fjölskyldusviðs.

Málsnúmer 2006570

14

Erindi Sorpu bs. varðandi tillögur vegna fjármála félagsins, dags. 25.06.20.

Fyrir er tekið að nýju erindi Sorpu bs. en erindinu fylgdu eftirfarandi tillögur.

Tillaga (1) um viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 vegna meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi.

Tillaga (2) um aðgerðir til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga Sorpu bs. Í tillögunni kemur fram skipting fjárframlaganna milli sveitarfélaga.

Tillaga (3) um gjaldskrárbreytingar til að mæta kostnaði vegna hertra krafna um meðferð úrgangs.

Bæjarráð samþykkir tillögu 1 um viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 v. meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi.

Bæjarráð samþykkir tillögu 2 um aðgerðir til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga Sorpu bs.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna greiðslu stofnframlaga að fjárhæð 36,3 mkr.

Tillaga um gjaldskrárbreytingar er á þessu stigi lögð fram til kynningar.

Björg Fenger, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.