Sumarstörf ungmenna 2021.
Málsnúmer 2104394
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
16. (1974). fundur
Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri gerði grein fyrir umsóknum um sumarstörf ungmenna. Heildarfjöldi umsókna 17 ára og eldri er 793 og þá hafa 612 skráð sig í Vinnuskólann. Verið er að ganga frá ráðningum og allir fá vinnu. Garðabær hefur fengið úthlutað 45 stöðugildum í 2,5 mánuði frá Vinnumálastofnun sem er liður í atvinnuátaki námsmanna. Samsvarar það til 79,7 stöðugilda í 87,5% starfi í 7 vikur. Umsækjendur þurfa að vera skráðir í nám að hausti 2021 eða hafa verið skráðir í nám á vorönn 2021. Fram kom að sótt hefur verið um viðbótarstöðugildi til Vinnumálastofnunar.