Beint í efni

Framkvæmdir - Efnislosun

Málsnúmer 2104418

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (938). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir efnislosun í Glerhallardýi. Um er að ræða losun til bráðabirgða fyrir allt að 30.600 m3 af jarðvegi þar til deiliskipulag Norðurness liggur fyrir. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði og aðliggjandi svæði ætluð undir golfvöll og mun efnið þá nýtast til landslagsmótunar. Að öðrum kosti þarf að flytja efni sem losnar vegna framkvæmda í Breiðumýri um langan veg með tilheyrandi neikvæðum umhverfisáhrifum.“ (Mál nr. 2104418)

Bæjarráð Garðabæjar

02

11. (2112). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir efnislosun í Glerhallardýi. Um er að ræða losun til bráðabirgða fyrir allt að 30.600 m3 af jarðvegi þar til deiliskipulag Norðurness liggur fyrir. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði og aðliggjandi svæði ætluð undir golfvöll og mun efnið þá nýtast til landslagsmótunar. Að öðrum kosti þarf að flytja efni sem losnar vegna framkvæmda í Breiðumýri um langan veg með tilheyrandi neikvæðum umhverfisáhrifum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

3. fundur

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um viðbótar efnislosun í Glerhallardýi. Umsókn fylgir uppdráttur Landslags ehf sem sýnir staðsetningu og umfang efnislosunar með ákveðnum skilyrðum.
Efnislosun er til bráðabirgða þar til deiliskipulag Norðurness liggur fyrir en samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði og aðliggjandi svæði ætluð undir golfvöll og mun efnið þá nýtast til landslagsmótunar. Að öðrum kosti þarf að flytja efni sem losnar vegna framkvæmda í Breiðumýri um langan veg með tilheyrandi umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir 30.600 m3 til viðbótar í Glerhallardýi í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010 sem eru í samræmi við framlögð gögn með þeim skilyrðum að það verði nýtt til landslagsmótunar þegar að uppbygging golfvallar verður hafin.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

7. (885). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga fyrir efnislosun í Glerhallardýi. Um er að ræða losun allt að 39.500 m3 af jarðvegi í Glerhallardýi sem er svæði á landnotkunarreit 1.07 íþ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020. Gert er ráð fyrir efnislosun á svæðinu í heild verði 45.500 m3 og hefur þegar verið heimilað að losa 6.000 m3. Stærð heildarsvæðisins þar sem jarðvegur verður losaður er 32.700 m2 Það er ákvörðun skipulagsnefndar að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Vísast þar til 3. mgr. 4. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 en framkvæmdin fellur undir lið 2.04 í 1.viðauka laganna sem fellur í flokk C. Það er því í verkahring sveitarfélagsins að taka ákvörðun um matsskyldu. (Mál nr. 2104418)

Bæjarráð Garðabæjar

05

16. (1974). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir efnislosun í Glerhallardýi.
Um er að ræða losun allt að 39.500 m3 af jarðvegi í Glerhallardýi sem er svæði á landnotkunarreit 1.07 íþ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020. Gert er ráð fyrir efnislosun á svæðinu í heild verði 45.500 m3 og hefur þegar verið heimilað að losa 6.000 m3. Stærð heildarsvæðisins þar sem jarðvegur verður losaður er 32.700 m2 Það ákvörðun skipulagsnefndar að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Vísast þar til 3. mgr. 4. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 en framkvæmdin fellur undir lið 2.04 í 1.viðauka laganna sem fellur í flokk C. Það er því í verkahring sveitarfélagsins að taka ákvörðun um matsskyldu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

6. fundur

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyrir efnislosun í Glerhallardýi á fyrirhuguðu golfvallarsvæði við vestan- og norðanverða Bessastaðatjörn eins og aðalskipulag og tillaga að deiliskipulagi gerir ráð fyrir. Efnið sem losað verður mun síðar verða nýtt til landslagsmótunar golfvallarins. Efnið sem losað verður á staðnum verður ómengaður jarðvegur úr uppbyggingarsvæðum á Álftanesi.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfið í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010.