Framkvæmdaleyfi - Lagning 11 kV háspennu jarðstrengs milli Kaldárselsveg og Urriðaholts
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (885). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita HS Veitum hf. framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu 11kV háspennujarðstrengs meðfram Flóttamannavegi frá bæjarmörkum við Kaldárselsveg að Urriðaholti. (Mál nr. 2104444)
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1974). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulaglaga fyrir lagningu 11kV háspennujarðstrengs meðfram Flóttamannavegi frá bæjarmörkum við Kaldárselsveg að Urriðaholti.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar fyrir framkvæmdaleyfi til lagningar 11 kV háspennujarðstrengs meðfram Flóttamannavegi frá bæjarmörkum við Kaldárselsveg að Urriðaholti til þess að auka afhendingaröryggi rafmagns í Garðabæ.
Í samræmi við 13.gr.skipulagslaga samþykkir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfi fyrir lagningu jarðstrengsins.