Bréf G og Ó lögmanna varðandi samþykkt tilboðs í byggingu dælustöðvar fyrir vatnsveitu í Vetrarmýri, dags. 28.09.22.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2042). fundur
Bæjarstjóri upplýsti að bréfinu hefur verið svarað og bréfritara veittar umbeðnar upplýsingar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
34. (2041). fundur
Lögð fram að nýju eftirfarandi tilboð sem bárust í byggingu dælustöðvar fyrir vatnsveitu í Vetrarmýri.
Langeldur ehf. kr. 109.747.000
Fortis ehf. kr. 111.809.316
Stéttafélagið ehf. kr. 103.878.870
Kostnaðaráætlun kr. 77.797.950
Lagt fram minnisblað Juris ? lögmanna og Eflu ? verkfræðistofu þar sem fram kemur að lægstbjóðandi Stéttafélagið ehf. uppfylli skilyrði útboðsskilmála um að hafa reynslu af sambærilegu verki ef litið er til eðli verksins í heild, þ.e. mannvirkjagerð. Garðabær mun kalla eftir frekari upplýsingum um reynslu undirverktaka vegna lagnavinnu.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Stéttafélagsins ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
03
33. (2040). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í byggingu dælustöðvar fyrri vatnsveitu í Vetrarmýri.
Langeldur ehf. kr. 109.747.000
Fortis ehf. kr. 111.809.316
Stéttafélagið ehf. kr. 103.878.870
Kostnaðaráætlun kr. 77.797.950
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð Garðabæjar
04
32. (2039). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í byggingu dælustöðvar fyrri vatnsveitu í Vetrarmýri.
Langeldur ehf. kr. 109.747.000
Fortis ehf. kr. 111.809.316
Stéttafélagið ehf. kr. 103.878.870
Kostnaðaráætlun kr. 77.797.950
Bæjarráð vísar tilboðunum á þessu stigi til nánari yfirferðar hjá tækni og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
05
25. (2032). fundur
Eftirfarandi tilboða barst í byggingu dælustöðvar fyrir vatnsveitu.
Langeldur ehf. kr. 123.470.000
Kostnaðaráætlun kr. 57.322.950
Bæjarráð hafnar tilboðinu með vísan til 2. mgr. 83. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Varðandi rökstuðning er bent á að umrætt tilboð er 215% af kostnaðaráætlun sem lá fyrir við opnun tilboða og 184% af uppfærðri kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að bjóða byggingu dælistöðvar út að nýju.