Beint í efni

34. (2041). fundur

27.09.2022
Bæjarráð Garðabæjar

34. (2041). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

27.09.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2209480

01

Smáraflöt 41 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hólmari Erni Eyjólfssyni, kt. 060890-3159. leyfi til byggja við núverandi einbýlishús við Smáraflöt 41.

Málsnúmer 2206285

02

Lambamýri 1-3 (MHL 06) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsbygg ehf., kt. 630210-1430, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum og verslunar- og þjónusturými á 1. hæð við Lambamýri 1-3.

Málsnúmer 2209418

03

Erindi Guðna Pálssonar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 20.09.22.

Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 5. mgr. 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2022 að fjárhæð kr. 160.116 af einbýlishúsinu að Litlabæjarvör 4. Friðlýsing hússins var samþykkt af ráðherra með bréfi, dags. 3. nóvember 2021.

Málsnúmer 2209452

04

Erindi Kristmundar Carter um afnot af opnu svæði við Kjarrmóa.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 2209450

05

Bréf Skógræktarfélags Íslands varðandi ályktun aðalfundar um Græna stíginn og skipulagsáætlanir sveitarfélaga, dags. 21.09.22.

Málsnúmer 2205414

06

Fundargerð 4. fundar stefnuráðs byggðasamlaganna, dags. 13.09.22.

Lögð fram og rædd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209223

07

Bréf Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf. varðandi úthlutun lóða á Hnoðraholti, dags. 12.09.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og felur honum að ræða við bréfritara þegar ákvörðun um úthlutun lóða á Hnoðraholti liggur fyrir.

Málsnúmer 2209469

08

Bréf Norræna félagsins varðandi stuðning við 100 ára afmæli félagsins, dags. 08.09.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2204047

09

Tilboð í byggingu dælustöðvar í Vetrarmýri.

Lögð fram að nýju eftirfarandi tilboð sem bárust í byggingu dælustöðvar fyrir vatnsveitu í Vetrarmýri.

Langeldur ehf. kr. 109.747.000

Fortis ehf. kr. 111.809.316

Stéttafélagið ehf. kr. 103.878.870

Kostnaðaráætlun kr. 77.797.950

Lagt fram minnisblað Juris ? lögmanna og Eflu ? verkfræðistofu þar sem fram kemur að lægstbjóðandi Stéttafélagið ehf. uppfylli skilyrði útboðsskilmála um að hafa reynslu af sambærilegu verki ef litið er til eðli verksins í heild, þ.e. mannvirkjagerð. Garðabær mun kalla eftir frekari upplýsingum um reynslu undirverktaka vegna lagnavinnu.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Stéttafélagsins ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2202487

10

Bréf Magna lögmanna varðandi tillögu að bótum vegna vegagerðar, dags. 19.09.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2209428

11

Áskorun frá Félagi atvinnurekenda, Húseigendafélaginu og Landssambandi eldri borgara varðandi álagningu fasteignagjalda, dags. 21.09.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209367

12

Tillaga kjörnefndar að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2022-2026.

Málsnúmer 2209496

13

Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga um skráningu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, dags. 22.09.22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2203112

14

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi ráðstefnuna "Samtaka um hringrásarhagkerfið, dags. 20.09.22.

Lögð fram.