Græni stígurinn - Ályktun af aðalfundi Skógræktarfélags Íslands
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Lagt fram erindi Skógræktarfélag Íslands með ályktun aðalfundar um Græna stíginn og skipulagsáætlanir sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu.
Kveðið er á um Græna stíginn og Bláþráðinn í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í kafla 4.2.5. í greinargerð. Liggur Grænistígurinn frá bæjarmörkum við Kópavog í Básaskarði um Sandahlíð, norður fyrir Vífilsstaðavatn um rætur Vífillstaðahlíðar og svo þvert yfir Urriðakotshraun norður fyrir Flóðahjalla, hjá Oddsmýri og suður fyrir Svínholt að bæjarmörkum við Hafnarfjörð.
Gert er ráð fyrir græna stígnum í gildandi deiliskipulagi Heiðmerkur og í tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum sem nú er í vinnslu.
Skipulagsnefnd tekur undir það með Skógræktarfélagi Íslands að hugað verði að fjármögnum framkvæmda enda er Græni stígurinn í samræmi við skipulagsáætlanir á öllum stigum í Garðabæ sem og í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
5 (22-26). fundur
Lagt fram og umhverfisnefnd tekur undir áskorun skógræktarfélagsins til SSH og innviðaráðuneytis um að hrinda í framkvæmd gerð Græna stígsins ofan höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við skógræktarfélög á svæðinu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
34. (2041). fundur
Bæjarráð vísar bréfunum til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.