10. fundur
10. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
17.08.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2110129
01
Arnarland. Deiliskipulag
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic arkitektum gerði grein fyrir kynningarefni forkynningar sem verður auglýst innan skamms. Tillaga að deiliskipulagi verður forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til sama svæðis.
Málsnúmer 2302672
02
Hnoðraholt N, dsk.br. Þorraholt 2 og 4.
Tillaga að breytingu Hnoðraholts Norður sem nær til lóðanna Þorraholt 2 og 4 lögð fram öðru sinni að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum og umsögnum sem bárust.
Drög að svörum til þeirra sem gerðu athugasemdir kynnt.
Vísað til úrvinnslu á umhverfissviði.
Málsnúmer 2210617
03
Gilsbúð 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á efri hæð atvinnuhúsnæðis að Gilsbúð 9 að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugsemdum sem borist hafa. Þar sem að deiliskipulag fyrir Bæjargil telst ekki í gildi er byggingarleyfið grenndarkynnt í samræmi við 1.og.2. ml. 1.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Formaður nefndarinnar gerði grein fyrir fundi með umsækjendum þar sem fram kom að þeir munu innan skamms hefja framkvæmdir við gerð bílastæða á lóð sem heimild er fyrir samkvæmt deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var. Að gerðum þeim breytingum munu starfsmenn geta lagt bifreiðum sínum innan lóðar. Skipulagsnefnd beinir þeim tilmælum til lóðarhafa að starfsfólki verði gert að leggja bifreiðum innan lóðar.
Á vegum umhverfissviðs er unnið að mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir Bæjargil og deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í Búðum.
Skipulagsnefnd telur að skerðing á útsýni sem mögulega verður vegna breytinga á efri hæð hússins hefði verið sú sama þó að tillagan hefði verið í samræmi við ákvæði í skipulagsskilmálum sem ná til Gilsbúðar.Til dæmis má benda á að hámarkshæð þessa hluta byggingarinnar er eftir breytingu 1,75 m lægri en heimiluð mænishæð samkvæmt deiliskipulagi. Skipulagsnefnd leggur til að útfærsla á þaksvölum verði með skjólvegg að götu til að draga úr mögulegum truflunum af útiveru starfmanna gagnvart íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 2306581
04
Blikanes 27 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum að einbýlishúsinu að Blikanesi 27. Umsögn skipulagsráðgjafa, Hornsteina, lögð fram. Áður hafði verið veitt umsögn um aðra tillögu sem lögð var fram sem fyrirspurn í upphafi árs. Í kjölfar fyrri umsagnar var tillögunni breytt talsvert.
Skipulagsnefnd telur að framlögð umsókn sé innan ramma deiliskipulags Arnarness á meðan að gert sé ráð fyrir þremur bílastæðum eins og uppdráttur sýnir.
Málsnúmer 2306583
05
Heiðarlundur 8 - óveruleg dsk breyting
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Lunda sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækki sem nemur opnu bílskýli á núverandi bílastæði og að lokuð bílageymsla verði fyrir einn bíl í stað tveggja. Rúmgott pláss verður fyrir bifreiðar innan lóðar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Heiðarlundi 6, 9, 11, 13, 15, 17 og 18.
Málsnúmer 2305608
06
Umsókn um byggingarleyfi - Litlatún 1
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir skilti á útvegg bensínstöðvarbyggingar að Litlatúni 1 sem snýr til norðurs í átt að Hafnarfjarðarvegi. Stærð skiltis verður 7 x 3 metrar eða 21 fermetri að stærð. Ekki er um ljósaskilti með hreyfanlegu skjáefni að ræða.
Skipulagsnefnd minnir á að samkvæmt deiliskipulagi skal stilla merkingum á útveggjum í hóf en gerir ekki athugasemd við umsóknina að öðru leyti.
Málsnúmer 2306516
07
Garðprýði 3 skipting lóðar - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirpurn lóðarhafa lóðarinnar að Garðprýði 3 varðandi möguleika á skiptingu lóðarinnar í tvær lóðir eða að heimild til að byggja tvö íbúðarhús á lóðinni.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Málsnúmer 2203672
08
Erindi um að koma að uppbyggingu íbúðarbyggaðr á Hleinum.
Lagt fram erindi frá Byggingarsamvinnufélagi eldri borgara í Garðabæ til bæjarstjórnar dags. 29. mars 2022 þar sem farið er fram á viðræður við bæjaryfirvöld um uppbyggingu á íbúðarbyggðar á vegum félagsins norðan við Hleinar hjá Hrafnistu.
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði/skipulagsstjóra að vinna að gerð minnisblaðs um stöðu skipulags á svæðinu og hvaða skref er skynsamlegt að taka á næstu misserum til að móta stefnu um framtíð svæðisins.
Málsnúmer 2307075
09
Hafnarfjarðarvegur Olís - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsókn Veitna ohf. um lóð fyrir smádreifistöð rafmagns til þess að geta afgreitt stóra heimtaug fyrir hraðhleðslustöð Ísorku/Olís á bensínstöð Olís á horni Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar.
Um er að ræða lóða, líkt og lóð bensínsstöðvar Olís á svæði utan deiliskipulags en hvorki deiliskipulag Ása- og Grunda né deiliskipulag Hafnarfjarðarvegar ná til þessa svæðis.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að lóð verði skilgreind á mæliblaði og henni ráðstafað til Veitna í umræddum tilgangi enda æskilegt að fjölga hraðhleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla. Koma þarf fram á mæliblaði og í lóðarleigusamningi að ekki sé gert ráð fyrir henni í skipulagi og að byggingarleyfi sé veitt með þeim fyrirvara að mannvirkið sé víkjandi.
Málsnúmer 2302427
10
Litlatún 1 Spennustöð - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags miðbæjar Garðabæjar svæðis IV (Sveinatungureitur) sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir spennistöð sem geti verið allt að 15 m2 að grunnfleti og 3 m að hæð. Staðsetning er í suðurhorni lóðar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags miðbæjar Garðabæjar svæðis III í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa (umsækjanda) og Garðabæjar.
Málsnúmer 2209212
11
Hagaflöt 1 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir sem bárust lagðar fram.
Lóðarhafi leggur til breytingu á hæð hússins.
Skipulagsnefnd beinir því til skipulagsstjóra að sú útfærsla verði borin undir þau sem athugasemd gerðu.
Málsnúmer 2307166
12
Aðalskipulagsbreyting Suðurgata 4 - Hafnarfjörður
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við breytingartillöguna.
Málsnúmer 2308225
13
Breiðvangur 62A og 62B - óveruleg deiliskipulagsbreyting - ósk um umsögn
Fyrir hönd Garðabæjar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við breytingartillöguna en væntir þess að grenndarkynning nái einnig til eigenda aðliggjandi lands Hrauntungu.