Beint í efni

Litlatún 1 Spennustöð - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2302427

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (926). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði 3) er varðar lóðina við Litlatún 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að gera ráð fyrir byggingarreit fyrir spennustöð sem geti verið allt að 15 fm að stærð og 3 m að hæð í suðausturhluta lóðarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.“ (Mál nr. 2302427)

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (2084). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði 3) er varðar lóðina við Litlatún 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að gera ráð fyrir byggingarreit fyrir spennustöð sem geti verið allt að 15 fm að stærð og 3 m að hæð í suðausturhluta lóðarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags miðbæjar Garðabæjar svæðis IV (Sveinatungureitur) sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir spennistöð sem geti verið allt að 15 m2 að grunnfleti og 3 m að hæð. Staðsetning er í suðurhorni lóðar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags miðbæjar Garðabæjar svæðis III í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa (umsækjanda) og Garðabæjar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

3. fundur

Skipulagsnefnd fagnar því að Orkan ehf skuli stefna að því að auka þjónustu við viðskiptavini sína og taka þátt í áformum yfirvalda um orkuskipti.
Nefndin óskar eftir því að lögð verði fram heildstæð tillaga að breytingu lóðarinnar sem gerir ráð fyrir þeim breytingum sem orðið hafa og þeim framtíðaráformum sem lóðarhafi hefur um nýtingu lóðarinnar.