Umsókn um byggingarleyfi - Litlatún 1
Málsnúmer 2305608
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir skilti á útvegg bensínstöðvarbyggingar að Litlatúni 1 sem snýr til norðurs í átt að Hafnarfjarðarvegi. Stærð skiltis verður 7 x 3 metrar eða 21 fermetri að stærð. Ekki er um ljósaskilti með hreyfanlegu skjáefni að ræða.
Skipulagsnefnd minnir á að samkvæmt deiliskipulagi skal stilla merkingum á útveggjum í hóf en gerir ekki athugasemd við umsóknina að öðru leyti.