Beint í efni

Gilsbúð 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Málsnúmer 2210617

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

11. (2112). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Krakatindi ehf., kt. 561213-0460, leyfi til að byggja viðbótarhæð að hluta og gera breytingar á núverandi atvinnuhúsnæði við Gilsbúð 9.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

15. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

13. fundur

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við aðaluppdrætti hvað varðar hækkun á austurgafli enda hefur sú útfærsla hlotið grenndarkynningarferli og gerði skipulagsnefnd ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis fyrir því.
Hinsvegar þá lagði skipulagsnefnd það til við afgreiðslu málsins þann 17. ágúst sl. að gert yrði ráð fyrir skjólvegg á þaksvölum að götu til að draga út mögulegum truflunum af útiveru starfsmanna gagnvart íbúðarbyggð. Er því gerð athugasemd við skjólveggur er ekki sýndur.
Hvað varðar móttökuskýli við tengibyggingu sem uppdrættir gera ráð fyrir þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við þá útfærslu enda grenndaráhrif þess engin enda skýlið vel innan byggingarreits.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að útskotsbygging við lager skjótist lítillega út fyrir byggingarreit að vestanverðu.
Skipulagsstjóri gerir athugasemd við að færanlegur gámur sem nýta á sem lager sé sýndur utan byggingarreits inni á aðaluppdráttum. Vakin er athygli á því að á þessum stað er kvöð um holræsi og ekki hægt að mæla með stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við lager.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

11. (926). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á efri hæð atvinnuhúsnæðisins við Gilsbúð 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust tvær athugasemdir varðandi hækkun á hæð hússins, útsýnisskerðingu og ónæði frá bifreiðastæðum í götu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og tryggt er að hæð hússins er ekki umfram heimildir í gildandi skilmálum. Fundað hefur verið með eigendum húsnæðisins varðandi lausnir til að starfsmenn geti lagt bifreiðum sínum innan lóðar en með því er dregið úr óþægindum vegna notkunar starfsmanna á bifreiðastæðum í götunni.“ (Mál nr. 2210617)

Bæjarráð Garðabæjar

05

31. (2084). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á efri hæð atvinnuhúsnæðisins við Gilsbúð 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust tvær athugasemdir varðandi hækkun á hæð hússins, útsýnisskerðingu og ónæði frá bifreiðastæðum í götu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og tryggt er að hæð hússins er ekki umfram heimildir í gildandi skilmálum. Fundað hefur verið með eigendum húsnæðisins varðandi lausnir til að starfsmenn geti lagt bifreiðum sínum innan lóðar en með því er dregið úr óþægindum vegna notkunar starfsmanna á bifreiðastæðum í götunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á efri hæð atvinnuhúsnæðis að Gilsbúð 9 að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugsemdum sem borist hafa. Þar sem að deiliskipulag fyrir Bæjargil telst ekki í gildi er byggingarleyfið grenndarkynnt í samræmi við 1.og.2. ml. 1.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Formaður nefndarinnar gerði grein fyrir fundi með umsækjendum þar sem fram kom að þeir munu innan skamms hefja framkvæmdir við gerð bílastæða á lóð sem heimild er fyrir samkvæmt deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var. Að gerðum þeim breytingum munu starfsmenn geta lagt bifreiðum sínum innan lóðar. Skipulagsnefnd beinir þeim tilmælum til lóðarhafa að starfsfólki verði gert að leggja bifreiðum innan lóðar.
Á vegum umhverfissviðs er unnið að mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir Bæjargil og deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í Búðum.
Skipulagsnefnd telur að skerðing á útsýni sem mögulega verður vegna breytinga á efri hæð hússins hefði verið sú sama þó að tillagan hefði verið í samræmi við ákvæði í skipulagsskilmálum sem ná til Gilsbúðar.Til dæmis má benda á að hámarkshæð þessa hluta byggingarinnar er eftir breytingu 1,75 m lægri en heimiluð mænishæð samkvæmt deiliskipulagi. Skipulagsnefnd leggur til að útfærsla á þaksvölum verði með skjólvegg að götu til að draga úr mögulegum truflunum af útiveru starfmanna gagnvart íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

9. fundur

Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi sem vísað var til grenndarkynningar ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Í athugasemdum kemur fram að starfsemi athafnasvæðisins er farin að valda álagi á aðliggjandi íbúðarbyggð, bæði vegna umfangs bygginga og umferðarálags (bílastæða).
Skipulagsnefnd vísar málinu til yfirstandandi vinnu við endurskoðun deiliskipulags Iðnbúðar og Smiðsbúðar og Bæjargils. Skoða skal sérstaklega hvernig stuðla megi að sátt á milli íbúðarbyggðar og athafnasvæðis.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

6. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem sem borist hafa. Skipulagsnefnd fellst á að taka til greina eitt erindi með athugasemdum sem barst eftir að fresti til að skila inn athugasemdum lauk.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

5. f.(920). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna innri breytingar á atvinnuhúsnæði við Gilsbúð 9 en deiliskipulag liggur ekki fyrir. Grenndarkynna skal eigendum húsa við Gilsbúð og eigendum og íbúum að Bæjargili 16-24, 26-34, 36-44, 46-50 og 52-60. (Mál nr. 2210617)

Bæjarráð Garðabæjar

10

11. (2064). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna innri breytingar á atvinnuhúsnæði við Gilsbúð 9 en deiliskipulag liggur ekki fyrir. Grenndarkynna skal eigendum húsa við Gilsbúð og eigendum og íbúum að Bæjargili 16-24, 26-34, 36-44, 46-50 og 52-60.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

4. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi um breytingar á byggingu fyrirtækisins Sóma ehf að Gilsbúð 9. Sótt er um breytingu á annari hæð sem snýr að götu og gert er ráð fyrir að starfsmannamötuneyti verði komið fyrir í því rými.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum húsa við Gilsbúð og eigendum og íbúum að Bæjargili 16-24, 26-34,36-44,46-50 og 52-60.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

11. fundur

Baldur Ó. Svavarsson arkitekt kom og gerði grein fyrir umsókn um breytingu deiliskipulags Gilsbúðar 9.
Umsókn vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.