13. fundur
13. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
27.10.2023
Kl. 10:00 - 10:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2309158
01
Hraunhólar 6 - skipting lóðar -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar við Hraunhóla 6. Tillagan gerir ráð fyrir að lóðinni við Hraunhóla 6 verði skipt í tvær einbýlishúsalóðir. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2309247
02
Suðurhraun 1-3 deiliskipulagsbreyting- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem nær til lóðarinnar við Suðurhraun 1 og 3. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Suðurhrauns 1 og 3. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2310316
03
Holtsvegur 53 - Fyrirspurn um skjóveggi/vindbrjóta
Lögð fram fyrirspurn arkitekts um gerð skjólveggjar á þaksvölum á 5. hæð fjölbýlishússins við Holtsveg 53. Gert er ráð fyrir að veggurinn verði 1,5 m og efni sambærilegt og klæðning.
Með vísan í skilmála deiliskipulags Urriðaholts austurhluta gr. 4.6.4, 4.7.2, 4.7.17 og 4.7.19 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við útfærsluna með tilliti til deiliskipulags.
Málsnúmer 2211541
04
Dýjagata 7 - breyting á deiliskipulagi - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir einnar hæðar byggingarreit neðanjarðar á 1. hæð að lóðamörkum græns geira í eigu Garðabæjar.
Einnig er heimilt að koma fyrir steyptum vegg á lóðamörkum að grænum geira. Hámarkshæð steypts veggjar er 90 cm
yfir aðliggjandi landhæð.
Byggingarmagn, kennisnið og deiliskipulagsskilmálar eru að öðru leyti óbreytt.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Dýjagötu 5,9,10 og 12 og Kinnargötu 6 og 8.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2210617
05
Gilsbúð 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við aðaluppdrætti hvað varðar hækkun á austurgafli enda hefur sú útfærsla hlotið grenndarkynningarferli og gerði skipulagsnefnd ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis fyrir því.
Hinsvegar þá lagði skipulagsnefnd það til við afgreiðslu málsins þann 17. ágúst sl. að gert yrði ráð fyrir skjólvegg á þaksvölum að götu til að draga út mögulegum truflunum af útiveru starfsmanna gagnvart íbúðarbyggð. Er því gerð athugasemd við skjólveggur er ekki sýndur.
Hvað varðar móttökuskýli við tengibyggingu sem uppdrættir gera ráð fyrir þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við þá útfærslu enda grenndaráhrif þess engin enda skýlið vel innan byggingarreits.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að útskotsbygging við lager skjótist lítillega út fyrir byggingarreit að vestanverðu.
Skipulagsstjóri gerir athugasemd við að færanlegur gámur sem nýta á sem lager sé sýndur utan byggingarreits inni á aðaluppdráttum. Vakin er athygli á því að á þessum stað er kvöð um holræsi og ekki hægt að mæla með stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við lager.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2309596
06
Borgarás 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs fyrir sólstofu á neðri hæð og svalir á eftir hæð. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að húsið geti verið 2 hæðir eins og húsið að Borgarási 12. Mænishæð verði 6,5 m en vegghæð 5 m. Húsið er í dag ein hæð og ris en deiliskipulag kveður ekki á um hæð hússins eða þakgerð.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndakynna skal eigendum allra eigna við Borgarás, Ásabraut 2 sem og Melás 3,5,7,9 og 11.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2310345
07
Holtstún 14 - úr landi Eyvindarstaða- Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi ásamt aðaluppdráttum fyrir einbýlishús að Holtstúni 14 við Bessastaðatjörn.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis þar sem að útfærslan hefur verið grenndarkynnt samkvæmt 44.gr.skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt Holtstúni 16 og hafa nágrannar með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við grennarkynntan uppdrátt. Uppdrættir voru kynntir fyrir eigendum Stekkjar, Asparvíkur og Tjarnar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2310100
08
Framkvæmdir - Gatnagerð Holtstún 14-16
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrr gerð vegslóða í fyrirhuguðu götustæði í samræmi við lóðablöð. Endanleg hönnun vegar og veitukerfa liggur ekki fyrir. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við framlögð gögn og 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.