Beint í efni

Borgarás 10 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2309596

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála vegna byggingarleyfis og skipulagsbreytingar að Borgarási 10.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2105). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Björk Sigursteinsdóttur, kt. 220179-3469 leyfi til að endurbyggja eftir hæð og endurnýja þak tvíbýlishússins við Borgarás 10.

Bæjarráð Garðabæjar

03

48. (2101). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Borgarás 10. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs fyrir sólstofu á neðri hæð og svalir á eftir hæð. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að húsið geti verið 2 hæðir eins og húsið að Borgarási 12. Mænishæð verði 6,5 m en vegghæð 5 m. Húsið er í dag ein hæð og ris en deiliskipulag kveður ekki á um hæð hússins eða þakgerð.
Skipulagsstjóri mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga.
Engar athugasemdir bárust og metur skipulagsnefnd tillöguna því sem samþykkta.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs fyrir sólstofu á neðri hæð og svalir á eftir hæð. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að húsið geti verið 2 hæðir eins og húsið að Borgarási 12. Mænishæð verði 6,5 m en vegghæð 5 m. Húsið er í dag ein hæð og ris en deiliskipulag kveður ekki á um hæð hússins eða þakgerð.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndakynna skal eigendum allra eigna við Borgarás, Ásabraut 2 sem og Melás 3,5,7,9 og 11.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.