Hraunhólar 6 - skipting lóðar -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar við Hraunhóla 6. Tillagan gerir ráð fyrir að lóðinni við Hraunhóla 6 verði skipt í tvær einbýlishúsalóðir. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
12. (927). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um að lóðinni við Hraunhóla 6 verði skipt í tvær
einbýlishúsalóðir. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla.“ (Mál nr. 2309158)
Bæjarráð Garðabæjar
04
35. (2088). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um að lóðinni við Hraunhóla 6 verði skipt í tvær einbýlishúsalóðir. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að lóðin Hraunhólar 6 skiptist í tvær einbýlishúsalóðir. Með vísan til ríkjandi byggðarmynsturs og skiptingar lóða númer 8 og 12 metur skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla.