Suðurhraun 1-3 deiliskipulagsbreyting- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem nær til lóðarinnar við Suðurhraun 1 og 3. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Suðurhrauns 1 og 3. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
12. (927). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um breytt lóðarmörk lóðanna við Suðurhraun 1 og 3. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Miðhrauns 20 og 22, Suðurhrauns 2, 4, 6, 10, og 12a og Vesturhrauns 1, 3, og 5.“ (Mál nr.2309247)
Bæjarráð Garðabæjar
04
35. (2088). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um breytt lóðarmörk lóðanna við Suðurhraun 1 og 3. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Miðhrauns 20 og 22, Suðurhrauns 2, 4, 6, 10, og 12a og Vesturhrauns 1, 3, og 5.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerir ráð fyrir breyttum lóðarmörkum á milli Suðurhrauns 1 og Suðurhrauns 3. Lóð nr.1 minnkar og lóð nr. 3 stækkar sem tilfærslu nemur.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Miðhrauns 20 og 22, Suðurhrauns 2,4,6,10 og 12a og Vesturhrauns 1,3 og 5,