Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna fyrirspurnar til tækni og umhverfissviðs varðandi lóð fyrir smádreifistöð Veitna við Olís í Garðabæ.

Málsnúmer 2307075

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (2119). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi erindi Veitna ohf. dags. 26. mars 2024. Í erindinu kemur fram að Veitur geti ekki fallist á að lóð fyrir smádreifistöð til þess að geta afhent rafmagn fyrir hraðhleðslustöðvar Ísorku/Olís a horni Hafnarfjarðarvegar og Vífilstaðavegar, hafi ekki stoð í deiliskipulagi.
Staðsetning dreifistöðvarlóðarinnar er utan deiliskipulagssvæðis Hafnarfjarðarvegar og á svæði sem skilgreint er í deiliskipulagi Ása og Grunda, sem svæði þar sem deiliskipulagi er frestað.
Bensínstöðvarlóðin á sér þannig ekki stoð í deiliskipulagi og því er óhjákvæmilegt að lóð smádreifistöðvar sem tengist umræddri bensínstöðvarlóð hafi sömu stöðu gagnvart skipulagi.
Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að nefndin sýni því skilning að Veitur vinni eftir verklagsreglum en til þess að dreifistöðvarlóðin geti eignast stoð í skipulagi þyrfti bensínstöðin að hafa þá sömu stoð og skipulagsnefnd mælir þannig ekki með því að áætlunum verði breytt hvað það varðar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lagt fram erindi Veitna dags. 26.3.2024, þar sem fram kemur að Veitur geti ekki fallist á að lóð fyrir smádreifistöð, til þess að geta afhent rafmagn fyrir hraðhleðslustöðvar Ísorku/Olís á horni Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðvegar, hafi ekki stoð í deiliskipulagi. Staðsetning dreifistöðvarlóðarinnar er utan deiliskipulagssvæðis Hafnarfjarðarvegar og á svæði sem skilgreint er í deiliskiplagi Ása og Grunda sem svæði þar sem deiliskipulagi er frestað.
Það þýðir að bensínstöðvarlóðin á sér ekki stoð í deiliskipulagi og því er óhjákvæmilegt að lóð smádreifistöðvar sem tengist umræddri bensínstöðvarlóð hafi sömu stöðu gagnvart skipulagi.
Skipulagsnefnd sýnir því skilning að Veitur vinni eftir verklagsreglum en til þess að dreifistöðvarlóðin geti eignast stoð í skipulagi þyrfti bensínstöðin að hafa þá sömu stoð og skipulagsnefnd mælir ekki með því að áætlunum verði breytt hvað það varðar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

13. (2114). fundur

Í bréfinu er þess farið á leit að skipulagsnefnd falli frá því skilyrði að mannvirkið sé víkjandi.
Bréfinu er vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

11. (926). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um stofnun lóðar fyrir smádreifistöð á vegum Veitna ohf. við suðvesturhorn lóðarmarka lóðar Olís við Hafnarfjarðaveg. Koma þarf fram á mæliblaði og í lóðarleigusamningi að ekki sé gert ráð fyrir lóðinni í skipulagi og að byggingarleyfi verði veitt með þeim fyrirvara að lóðin og mannvirki á lóð séu víkjandi.“ (Mál nr. 2307075)

Bæjarráð Garðabæjar

05

31. (2084). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um stofnun lóðar fyrir smádreifistöð á vegum Veitna ohf. við suðvesturhorn lóðarmarka lóðar Olís við Hafnarfjarðaveg. Koma þarf fram á mæliblaði og í lóðarleigusamningi að ekki sé gert ráð fyrir lóðinni í skipulagi og að byggingarleyfi verði veitt með þeim fyrirvara að lóðin og mannvirki á lóð séu víkjandi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Lögð fram umsókn Veitna ohf. um lóð fyrir smádreifistöð rafmagns til þess að geta afgreitt stóra heimtaug fyrir hraðhleðslustöð Ísorku/Olís á bensínstöð Olís á horni Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar.
Um er að ræða lóða, líkt og lóð bensínsstöðvar Olís á svæði utan deiliskipulags en hvorki deiliskipulag Ása- og Grunda né deiliskipulag Hafnarfjarðarvegar ná til þessa svæðis.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að lóð verði skilgreind á mæliblaði og henni ráðstafað til Veitna í umræddum tilgangi enda æskilegt að fjölga hraðhleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla. Koma þarf fram á mæliblaði og í lóðarleigusamningi að ekki sé gert ráð fyrir henni í skipulagi og að byggingarleyfi sé veitt með þeim fyrirvara að mannvirkið sé víkjandi.