Arnarland. Deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (956). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 24. febrúar 2025 vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði. Tillagan nær til 8,9 h svæðis sem í aðalskipulagi nefnist Arnarnesháls og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir blandaðri byggð með 2 til 6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði, næst Hafnarfjarðarvegi. Ein bygging ætluð atvinnustarfsemi, kennileitisbygging, geti orðið allt að 7 hæðir. Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni. Annars vegar frá Fífuhvammsvegi og hins vegar er innanbæjartenging með undirgöngum undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Á svæðinu er gert ráð fyrir um 450 íbúðum og u.þ.b. 37.000 m² af verslunar-, skrifstofu- og þjónusturýmum. Nýtingarhlutfall svæðis er um 0,95. Tillagan gerir ráð fyrir 1 bílastæði í bílakjallara á hverja íbúð minni en 100 m² og 1,5 bílastæði á íbúðir stærri en 100 m² og gestastæðum í göturýmum. Í húsum ofarlega í byggðinni er heimilt að gera ráð fyrir 2 bílastæðum á íbúð stærri en 120 m². Því til viðbótar er gert ráð fyrir lóð undir sérstakt bílageymsluhús sem getur orðið allt að 7000 m². Það hús gæti þjónað bæði atvinnu-, verslunar og íbúðahúsnæði. Því húsi er síðan hægt að breyta í atvinnuhúsnæði ef þörf fyrir bílastæðarými minnkar með tilkomu annara samgöngukosta en nú eru ríkjandi. Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu í áföngum og mögulegt verður að nýta óbyggðar lóðir sem bílastæði, þangað til að uppbygging samgöngukerfisins verður lengra komin. Tillagan var í kynningu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en athugasemdafrestur var framlengdur um 10 daga. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim. Lagðar fram greiningar á skuggavarpi sem fyrirhuguð byggð myndar. Skuggavarpsgreiningar voru unnar af skipulagsráðgjafa verkefnisins en einnig var utanaðkomandi ráðgjafi fenginn til að vinna frekari greiningu. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að skipulagsáætlanir hafa, allt frá því að þær birtust fyrst í aðalskipulagi Garðabæjar 1985-2005, gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á þessum reit og vísar að öðru leyti í bókun um aðalskipulagsbreytingu þá sem auglýst hefur verið samhliða þessari deiliskipulagstillögu. Tillagan er fyrsta tillaga að deiliskipulagi svæðisins sem hefur verið vísað í skipulagsferli þó svo að aðalskipulag hafi í fjóra áratugi gert ráð fyrir landnotkun á reitnum. Landeigendur hafa á árum áður þó komið með hugmyndir um skipulag og þær kynntar í skipulagsnefnd án þess að haldið hafi verið áfram með þær. Tillagan hefur verið unnin af skipulagsráðgjöfum á vegum landeiganda í fullu samráði við skipulagsyfirvöld í Garðabæ. Skipulagsnefnd telur mikilvægt að þeir aðilar sem standa að verkefninu að hálfu landeiganda hafi fullan hug á að standa myndarlega að verki um uppbyggingu. Það skiptir öllu máli að vel takist til við þá uppbyggingu og að hún valdi sem minnstum áhrifum á umhverfi sitt, eins og verða má, með fagmennsku að leiðarljósi. Um leið hefur skipulagsnefnd lagt áherslu á að tekið sé tillit til sjónarmiða almennings og þá sérstaklega þeirra sem búa í nágrenni við svæðið. Þar hefur gott samtal og samráð við íbúa skipt höfuð máli. Tillagan hefur tekið miklum breytingum frá því að hún leit fyrst dagsins ljós við forkynningu og voru það ábendingar og athugasemdir almennings sem bárust í ferlinu sem léku stærsta hlutverkið við þá mótun. Skipulagsnefnd telur að þær breytingar hafi verið til bóta. Skipulagsnefnd bendir á að miklar breytingar hafa orðið á tillögunni frá forkynningu hennar. Helstu breytingar eru eftirfarandi: - Lega borgarlínu undir Arnarnesveg færð til vesturs, að mislægum gatnamótum, frá göngum fyrir akandi og gangandi vegfarendur undir Arnarnesveg - Hámarkshæðafjöldi kennileitisbyggingar er 7 hæðir í stað 9 hæða - Hámarkshæðafjöldi annarra bygginga heilsuklasa meðfram Hafnarfjarðarvegi hefur lækkað um 1-3 hæðir. - Salarhæð skrifstofuhæða er 3,7m í stað 4m - Salarhæð jarðhæðar er 4,7m í stað 6m - Hámarkshæð kennileitisbyggingar lækkar um ~13m og annarra hærri bygginga atvinnuhúsnæðis um ~3-10 m - Byggingarmagn heilsuklasa ofanjarðar hefur minnkað um 34%, frá forkynntri tillögu, eða úr 40.000 m² -> 26.500 m² - Dregið hefur verið úr umfangi heilsuklasans, sem hefur áhrif á ásýnd, skuggavarp og nærviðri - Svæðisnýting ofanjarðar er 0,95 í stað 1,11 - Íbúðareiningum fækkar um 78 úr 529 í 451 - Hámarkshæðafjöldi fjölbýlishúsa næst Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi lækkar um 1-2 hæðir - Grænt svæði í miðju byggðar stækkað - Bætt við heimild fyrir leikskóla - Göng undir Arnarnesveg færð austar frá fjölbýlishúsinu við Hofakur Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Arnarland og hefur vísað þeim til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú deiliskipulagsvinna er farin af stað í samstarfi við Kópavogsbæ og í samráði við Vegagerðina. Í tengslum við þá vinnu hafa verið og verða unnar umferðargreiningar og skoðanir sem nýtast til mótun tillagna á umbótum vegakerfisins. Umferðargreiningar og spár sýna fram á að álag muni aukast hvort sem að Arnarland byggist eða ekki og mikilvægt að áætlanir taki tillit til þess þannig að ráðist verði í framkvæmdir tímanlega. Fyrir liggja tillögur að umferðarbætandi aðgerðum á hringtorginu á gatnamótum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar og stefnt er að því að ráðast í þær á þessu ári. Einnig er stefnt að því að fara í umferðarbætandi aðgerðir á Akrabraut, þar sem bætt verður við vinstribeygjuvasa, svo aðkoma bæði að Akrahverfi og matvöruverslun verði skilvirkari. Í síðasta mánuði var samþykkt viljayfirlýsing Kópavogs og Garðabæjar um endurskoðun á sveitarfélagsmörkum á Arnarneshálsi og umferðarbætandi aðgerðir og fagnar skipulagsnefnd því samkomulagi. Skuggavarpsgreiningar sýna að áhrif skuggavarps á aðliggjandi byggð er minniháttar. Við mat á þeim atriðum sem athugasemdir og umsagnir lúta að er ástæða til þess að taka tillit til þess að tillagan hefur tekið miklum breytingum frá fyrstu stigum í meðförum skipulagsnefndar. Þar höfðu ábendingar um skuggavarp og útsýni m.a. áhrif. Til þess að koma enn frekar til móts við athugasemdir sem varða innsýn og skuggavarp sem áhrif geta haft á hús við Súlunes sem og ásýnd svæðisins leggur skipulagsnefnd til að sú breyting verði gerð á auglýstri tillögu að byggingarreitir þeirra hærri húshluta sem næst eru Hafnarfjarðarvegi (6 hæða og 7 hæða) færist fjær Hafnarfjarðavegi og séu ekki nær lóðarmörkum en 12 metrar samanber samþykkt aðalskipulagsbreyting. Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkti skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða greinargerð.
Bæjarráð Garðabæjar
02
8. (2156). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 24. febrúar 2025 vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði. Tillagan nær til 8,9 h svæðis sem í aðalskipulagi nefnist Arnarnesháls og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir blandaðri byggð með 2 til 6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði, næst Hafnarfjarðarvegi. Ein bygging ætluð atvinnustarfsemi, kennileitisbygging, geti orðið allt að 7 hæðir. Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni. Annars vegar frá Fífuhvammsvegi og hins vegar er innanbæjartenging með undirgöngum undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Á svæðinu er gert ráð fyrir um 450 íbúðum og u.þ.b. 37.000 m² af verslunar-, skrifstofu- og þjónusturýmum. Nýtingarhlutfall svæðis er um 0,95. Tillagan gerir ráð fyrir 1 bílastæði í bílakjallara á hverja íbúð minni en 100 m² og 1,5 bílastæði á íbúðir stærri en 100 m² og gestastæðum í göturýmum. Í húsum ofarlega í byggðinni er heimilt að gera ráð fyrir 2 bílastæðum á íbúð stærri en 120 m². Því til viðbótar er gert ráð fyrir lóð undir sérstakt bílageymsluhús sem getur orðið allt að 7000 m². Það hús gæti þjónað bæði atvinnu-, verslunar og íbúðahúsnæði. Því húsi er síðan hægt að breyta í atvinnuhúsnæði ef þörf fyrir bílastæðarými minnkar með tilkomu annara samgöngukosta en nú eru ríkjandi. Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu í áföngum og mögulegt verður að nýta óbyggðar lóðir sem bílastæði, þangað til að uppbygging samgöngukerfisins verður lengra komin. Tillagan var í kynningu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en athugasemdafrestur var framlengdur um 10 daga. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim. Lagðar fram greiningar á skuggavarpi sem fyrirhuguð byggð myndar. Skuggavarpsgreiningar voru unnar af skipulagsráðgjafa verkefnisins en einnig var utanaðkomandi ráðgjafi fenginn til að vinna frekari greiningu. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að skipulagsáætlanir hafa, allt frá því að þær birtust fyrst í aðalskipulagi Garðabæjar 1985-2005, gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á þessum reit og vísar að öðru leyti í bókun um aðalskipulagsbreytingu þá sem auglýst hefur verið samhliða þessari deiliskipulagstillögu. Tillagan er fyrsta tillaga að deiliskipulagi svæðisins sem hefur verið vísað í skipulagsferli þó svo að aðalskipulag hafi í fjóra áratugi gert ráð fyrir landnotkun á reitnum. Landeigendur hafa á árum áður þó komið með hugmyndir um skipulag og þær kynntar í skipulagsnefnd án þess að haldið hafi verið áfram með þær. Tillagan hefur verið unnin af skipulagsráðgjöfum á vegum landeiganda í fullu samráði við skipulagsyfirvöld í Garðabæ. Skipulagsnefnd telur mikilvægt að þeir aðilar sem standa að verkefninu að hálfu landeiganda hafi fullan hug á að standa myndarlega að verki um uppbyggingu. Það skiptir öllu máli að vel takist til við þá uppbyggingu og að hún valdi sem minnstum áhrifum á umhverfi sitt, eins og verða má, með fagmennsku að leiðarljósi. Um leið hefur skipulagsnefnd lagt áherslu á að tekið sé tillit til sjónarmiða almennings og þá sérstaklega þeirra sem búa í nágrenni við svæðið. Þar hefur gott samtal og samráð við íbúa skipt höfuð máli. Tillagan hefur tekið miklum breytingum frá því að hún leit fyrst dagsins ljós við forkynningu og voru það ábendingar og athugasemdir almennings sem bárust í ferlinu sem léku stærsta hlutverkið við þá mótun. Skipulagsnefnd telur að þær breytingar hafi verið til bóta. Skipulagsnefnd bendir á að miklar breytingar hafa orðið á tillögunni frá forkynningu hennar. Helstu breytingar eru eftirfarandi: - Lega borgarlínu undir Arnarnesveg færð til vesturs, að mislægum gatnamótum, frá göngum fyrir akandi og gangandi vegfarendur undir Arnarnesveg - Hámarkshæðafjöldi kennileitisbyggingar er 7 hæðir í stað 9 hæða - Hámarkshæðafjöldi annarra bygginga heilsuklasa meðfram Hafnarfjarðarvegi hefur lækkað um 1-3 hæðir. - Salarhæð skrifstofuhæða er 3,7m í stað 4m - Salarhæð jarðhæðar er 4,7m í stað 6m - Hámarkshæð kennileitisbyggingar lækkar um ~13m og annarra hærri bygginga atvinnuhúsnæðis um ~3-10 m - Byggingarmagn heilsuklasa ofanjarðar hefur minnkað um 34%, frá forkynntri tillögu, eða úr 40.000 m² -> 26.500 m² - Dregið hefur verið úr umfangi heilsuklasans, sem hefur áhrif á ásýnd, skuggavarp og nærviðri - Svæðisnýting ofanjarðar er 0,95 í stað 1,11 - Íbúðareiningum fækkar um 78 úr 529 í 451 - Hámarkshæðafjöldi fjölbýlishúsa næst Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi lækkar um 1-2 hæðir - Grænt svæði í miðju byggðar stækkað - Bætt við heimild fyrir leikskóla - Göng undir Arnarnesveg færð austar frá fjölbýlishúsinu við Hofakur Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Arnarland og hefur vísað þeim til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú deiliskipulagsvinna er farin af stað í samstarfi við Kópavogsbæ og í samráði við Vegagerðina. Í tengslum við þá vinnu hafa verið og verða unnar umferðargreiningar og skoðanir sem nýtast til mótun tillagna á umbótum vegakerfisins. Umferðargreiningar og spár sýna fram á að álag muni aukast hvort sem að Arnarland byggist eða ekki og mikilvægt að áætlanir taki tillit til þess þannig að ráðist verði í framkvæmdir tímanlega. Fyrir liggja tillögur að umferðarbætandi aðgerðum á hringtorginu á gatnamótum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar og stefnt er að því að ráðast í þær á þessu ári. Einnig er stefnt að því að fara í umferðarbætandi aðgerðir á Akrabraut, þar sem bætt verður við vinstribeygjuvasa, svo aðkoma bæði að Akrahverfi og matvöruverslun verði skilvirkari. Í síðasta mánuði var samþykkt viljayfirlýsing Kópavogs og Garðabæjar um endurskoðun á sveitarfélagsmörkum á Arnarneshálsi og umferðarbætandi aðgerðir og fagnar skipulagsnefnd því samkomulagi. Skuggavarpsgreiningar sýna að áhrif skuggavarps á aðliggjandi byggð er minniháttar. Við mat á þeim atriðum sem athugasemdir og umsagnir lúta að er ástæða til þess að taka tillit til þess að tillagan hefur tekið miklum breytingum frá fyrstu stigum í meðförum skipulagsnefndar. Þar höfðu ábendingar um skuggavarp og útsýni m.a. áhrif. Til þess að koma enn frekar til móts við athugasemdir sem varða innsýn og skuggavarp sem áhrif geta haft á hús við Súlunes sem og ásýnd svæðisins leggur skipulagsnefnd til að sú breyting verði gerð á auglýstri tillögu að byggingarreitir þeirra hærri húshluta sem næst eru Hafnarfjarðarvegi (6 hæða og 7 hæða) færist fjær Hafnarfjarðavegi og séu ekki nær lóðarmörkum en 12 metrar samanber samþykkt aðalskipulagsbreyting. Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkti skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða greinargerð.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarlands að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Tillagan nær til 8,9 h svæðis sem í aðalskipulagi nefnist Arnarnesháls og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir blandaðri byggð með 2 til 6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði, næst Hafnarfjarðarvegi. Ein bygging ætluð atvinnustarfsemi, kennileitisbygging, geti orðið allt að 7 hæðir.
Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni. Annars vegar frá Fífuhvammsvegi og hins vegar er innanbæjartenging með undirgöngum undir Arnarnesveg frá Akrabraut.
Á svæðinu er gert ráð fyrir um 450 íbúðum og u.þ.b. 37.000 m² af verslunar-, skrifstofu- og þjónusturýmum. Nýtingarhlutfall svæðis er um 0,95.
Tillagan gerir ráð fyrir 1 bílastæði í bílakjallara á hverja íbúð minni en 100 m² og 1,5 bílastæði á íbúðir stærri en 100 m² og gestastæðum í göturýmum. Í húsum ofarlega í byggðinni er heimilt að gera ráð fyrir 2 bílastæðum á íbúð stærri en 120 m². Því til viðbótar er gert ráð fyrir lóð undir sérstakt bílageymsluhús sem getur orðið allt að 7000 m². Það hús gæti þjónað bæði atvinnu-, verslunar og íbúðahúsnæði. Því húsi er síðan hægt að breyta í atvinnuhúsnæði ef þörf fyrir bílastæðarými minnkar með tilkomu annara samgöngukosta en nú eru ríkjandi.
Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu í áföngum og mögulegt verður að nýta óbyggðar lóðir sem bílastæði, þangað til að uppbygging samgöngukerfisins verður lengra komin.
Tillagan var í kynningu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en athugasemdafrestur var framlengdur um 10 daga.
Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim.
Lagðar fram greiningar á skuggavarpi sem fyrirhuguð byggð myndar. Skuggavarpsgreiningar voru unnar af skipulagsráðgjafa verkefnisins en einnig var utanaðkomandi ráðgjafi fenginn til að vinna frekari greiningu.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að skipulagsáætlanir hafa, allt frá því að þær birtust fyrst í aðalskipulagi Garðabæjar 1985-2005, gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á þessum reit og vísar að öðru leyti í bókun um aðalskipulagsbreytingu þá sem auglýst hefur verið samhliða þessari deiliskipulagstillögu.
Tillagan er fyrsta tillaga að deiliskipulagi svæðisins sem hefur verið vísað í skipulagsferli þó svo að aðalskipulag hafi í fjóra áratugi gert ráð fyrir landnotkun á reitnum. Landeigendur hafa á árum áður þó komið með hugmyndir um skipulag og þær kynntar í skipulagsnefnd án þess að haldið hafi verið áfram með þær.
Tillagan hefur verið unnin af skipulagsráðgjöfum á vegum landeiganda í fullu samráði við skipulagsyfirvöld í Garðabæ. Skipulagsnefnd telur mikilvægt að þeir aðilar sem standa að verkefninu að hálfu landeiganda hafi fullan hug á að standa myndarlega að verki um uppbyggingu. Það skiptir öllu máli að vel takist til við þá uppbyggingu og að hún valdi sem minnstum áhrifum á umhverfi sitt, eins og verða má, með fagmennsku að leiðarljósi.
Um leið hefur skipulagsnefnd lagt áherslu á að tekið sé tillit til sjónarmiða almennings og þá sérstaklega þeirra sem búa í nágrenni við svæðið. Þar hefur gott samtal og samráð við íbúa skipt höfuð máli. Tillagan hefur tekið miklum breytingum frá því að hún leit fyrst dagsins ljós við forkynningu og voru það ábendingar og athugasemdir almennings sem bárust í ferlinu sem léku stærsta hlutverkið við þá mótun. Skipulagsnefnd telur að þær breytingar hafi verið til bóta.
Skipulagsnefnd bendir á að miklar breytingar hafa orðið á tillögunni frá forkynningu hennar. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Lega borgarlínu undir Arnarnesveg færð til vesturs, að mislægum gatnamótum, frá göngum fyrir akandi og gangandi vegfarendur undir Arnarnesveg
- Hámarkshæðafjöldi kennileitisbyggingar er 7 hæðir í stað 9 hæða
- Hámarkshæðafjöldi annarra bygginga heilsuklasa meðfram Hafnarfjarðarvegi hefur lækkað um 1-3 hæðir.
- Salarhæð skrifstofuhæða er 3,7m í stað 4m
- Salarhæð jarðhæðar er 4,7m í stað 6m
- Hámarkshæð kennileitisbyggingar lækkar um ~13m og annarra hærri bygginga atvinnuhúsnæðis um ~3-10 m
- Byggingarmagn heilsuklasa ofanjarðar hefur minnkað um 34%, frá forkynntri tillögu, eða úr 40.000 m² -> 26.500 m²
- Dregið hefur verið úr umfangi heilsuklasans, sem hefur áhrif á ásýnd, skuggavarp og nærviðri
- Svæðisnýting ofanjarðar er 0,95 í stað 1,11
- Íbúðareiningum fækkar um 78 úr 529 í 451
- Hámarkshæðafjöldi fjölbýlishúsa næst Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi lækkar um 1-2 hæðir
- Grænt svæði í miðju byggðar stækkað
- Bætt við heimild fyrir leikskóla
- Göng undir Arnarnesveg færð austar frá fjölbýlishúsinu við Hofakur
Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Arnarland og hefur vísað þeim til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú deiliskipulagsvinna er farin af stað í samstarfi við Kópavogsbæ og í samráði við Vegagerðina. Í tengslum við þá vinnu hafa verið og verða unnar umferðargreiningar og skoðanir sem nýtast til mótun tillagna á umbótum vegakerfisins. Umferðargreiningar og spár sýna fram á að álag muni aukast hvort sem að Arnarland byggist eða ekki og mikilvægt að áætlanir taki tillit til þess þannig að ráðist verði í framkvæmdir tímanlega.
Fyrir liggja tillögur að umferðarbætandi aðgerðum á hringtorginu á gatnamótum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar og stefnt er að því að ráðast í þær á þessu ári. Einnig er stefnt að því að fara í umferðarbætandi aðgerðir á Akrabraut, þar sem bætt verður við vinstribeygjuvasa, svo aðkoma bæði að Akrahverfi og matvöruverslun verði skilvirkari.
Í síðasta mánuði var samþykkt viljayfirlýsing Kópavogs og Garðabæjar um endurskoðun á sveitarfélagsmörkum á Arnarneshálsi og umferðarbætandi aðgerðir og fagnar skipulagsnefnd því samkomulagi.
Skuggavarpsgreiningar sýna að áhrif skuggavarps á aðliggjandi byggð er minniháttar. Við mat á þeim atriðum sem athugasemdir og umsagnir lúta að er ástæða til þess að taka tillit til þess að tillagan hefur tekið miklum breytingum frá fyrstu stigum í meðförum skipulagsnefndar. Þar höfðu ábendingar um skuggavarp og útsýni m.a. áhrif.
Til þess að koma enn frekar til móts við athugasemdir sem varða innsýn og skuggavarp sem áhrif geta haft á hús við Súlunes sem og ásýnd svæðisins leggur skipulagsnefnd til að sú breyting verði gerð á auglýstri tillögu að byggingarreitir þeirra hærri húshluta sem næst eru Hafnarfjarðarvegi (6 hæða og 7 hæða) færist fjær Hafnarfjarðavegi og séu ekki nær lóðarmörkum en 12 metrar samanber samþykkt aðalskipulagsbreyting.
Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða greinargerð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarlands, ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Lögð fram greining á innihaldi athugasemda og umsagna.
Umhverfissviði falið að vinna drög að svörum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarlands að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024 vegna nýrrar tillögu að deiliskipulagi Arnarlands. Áður auglýst tillaga er lögð til grundvallar en gerðar hafa verið á henni ýmsar breytingar sem koma til móts við þær athugasemdir og umsagnir sem bárust. -Hámarkshæð kennileitisbyggingar lækkuð úr 8 hæðum í 7 hæðir, auk þess að flestir aðrir hlutar byggingar voru lækkaðir um 1-3 hæðir. -Hæðafjöldi lækkar á mörgum byggingarreitum, m.a. næst Fífuhvammsvegi. -Byggingarmagn atvinnu- og íbúðabyggðar minnkar og samhliða minnkar nýtingarhlutfall svæðisins alls úr 1,11 í 0,95. -Fjöldi íbúða fer úr 529 í 451 íbúðir. -Bætt við heimild fyrir leiksskóla á miðsvæði á opnu svæði sem myndast í miðju hverfinu þegar dregið hefur verið úr byggingarmagni. -Undirgöng frá Landakri að Akrabraut, undir Arnarnesveg, færð austar. -Bætt við kvöð um hitaveitulögn veitna meðfram Fífuhvammsvegi. -Dælustöð fráveitu neðst á svæði felld út úr tillögu. Samkvæmt breyttri tillögu minnkar áætluð umferðarsköpun af byggð í Arnaland um 14%. Skipulagsnefnd lagði áherslu á að mótun deiliskipulagsins verði gerð í sem bestri sátt við íbúa í nágrenninu um leið og að skynsamlegri ráðstöfun þessa mikilvæga og verðmæta uppbyggingarsvæðis sé framfylgt. Á fyrri stigum ferlisins var brugðist við ábendingum og umsögnum með ýmsu móti, m.a. var dregið úr byggingarmagni, hæðafjölda bygginga osfv. Þær athugasemdir sem bárust við auglýstri tillögu sýndu að íbúar í nágrenninu telja að ganga mætti lengra til móts við ábendingarnar á ýmsa vegu. Nefndin féllst á þau sjónarmið og lagði því til þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á tillögunni í samráði við landeiganda og ráðgjafa. Tillagan kallar á breytingu á auglýstri breytingartillögu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands (Arnarneshálss) og var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi. Sú breyting er það óveruleg að skipulagsnefnd taldi að heimild sú sem Skipulagsstofnun veitti fyrir auglýsingu tillögunnar sé óbreytt. Í samræmi við 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010 vísaði skipulagsnefnd tillögunni til auglýsingar á nýjan leik, enda hefur henni verið breytt í grundvallaratriðum. Tillagan skal auglýst í samræmi við 1. mgr. sömu greinar og 1. mgr. 31. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
07
43. (2144). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024 vegna nýrrar tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.
Áður auglýst tillaga er lögð til grundvallar en gerðar hafa verið á henni ýmsar breytingar sem koma til móts við þær athugasemdir og umsagnir sem bárust.
-Hámarkshæð kennileitisbyggingar lækkuð úr 8 hæðum í 7 hæðir, auk þess að flestir aðrir hlutar byggingar voru lækkaðir um 1-3 hæðir.
-Hæðafjöldi lækkar á mörgum byggingarreitum, m.a. næst Fífuhvammsvegi.
-Byggingarmagn atvinnu- og íbúðabyggðar minnkar og samhliða minnkar nýtingarhlutfall svæðisins alls úr 1,11 í 0,95.
-Fjöldi íbúða fer úr 529 í 451 íbúðir.
-Bætt við heimild fyrir leiksskóla á miðsvæði á opnu svæði sem myndast í miðju hverfinu þegar dregið hefur verið úr byggingarmagni.
-Undirgöng frá Landakri að Akrabraut, undir Arnarnesveg, færð austar.
-Bætt við kvöð um hitaveitulögn veitna meðfram Fífuhvammsvegi.
-Dælustöð fráveitu neðst á svæði felld út úr tillögu.
Samkvæmt breyttri tillögu minnkar áætluð umferðarsköpun af byggð í Arnaland um 14%.
Skipulagsnefnd lagði áherslu á að mótun deiliskipulagsins verði gerð í sem bestri sátt við íbúa í nágrenninu um leið og að skynsamlegri ráðstöfun þessa mikilvæga og verðmæta uppbyggingarsvæðis sé framfylgt.
Á fyrri stigum ferlisins var brugðist við ábendingum og umsögnum með ýmsu móti, m.a. var dregið úr byggingarmagni, hæðafjölda bygginga osfv. Þær athugasemdir sem bárust við auglýstri tillögu sýndu að íbúar í nágrenninu telja að ganga mætti lengra til móts við ábendingarnar á ýmsa vegu. Nefndin féllst á þau sjónarmið og lagði því til þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á tillögunni í samráði við landeiganda og ráðgjafa.
Tillagan kallar á breytingu á auglýstri breytingartillögu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands (Arnarneshálss) og var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi. Sú breyting er það óveruleg að skipulagsnefnd taldi að heimild sú sem Skipulagsstofnun veitti fyrir auglýsingu tillögunnar sé óbreytt.
Í samræmi við 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010 vísaði skipulagsnefnd tillögunni til auglýsingar á nýjan leik, enda hefur henni verið breytt í grundvallaratriðum. Tillagan skal auglýst í samræmi við 1. mgr. sömu greinar og 1. mgr. 31. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
15. fundur
Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi Arnarlands. Sú tillaga sem auglýst var í vor er lögð til grundvallar en gerðar hafa verið á henni ýmsar breytingar sem koma til móts við þær athugasemdir og umsagnir sem bárust.
Jóhanna Helgadóttir kynnti tillöguna en auk hennar voru Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur, Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt viðstödd fundinn undir þessum lið.
Helstu breytingar eru:
-Hámarkshæð kennileitisbyggingar lækkuð úr 8 hæðum í 7 hæðir, auk þess að flestir aðrir hlutar byggingar voru lækkaðir um 1-3 hæðir.
-Hæðafjöldi lækkar á mörgum byggingarreitum, m.a. næst Fífuhvammsvegi.
-Byggingarmagn atvinnu- og íbúðabyggðar minnkar og samhliða minnkar nýtingarhlutfall svæðisins alls úr 1,11 í 0,95.
-Fjöldi íbúða fer úr 529 í 451 íbúðir.
-Bætt við heimild fyrir leiksskóla á miðsvæði á opnu svæði sem myndast í miðju hverfinu þegar dregið hefur verið úr byggingarmagni.
-Undirgöng frá Landakri að Akrabraut, undir Arnarnesveg, færð austar.
-Bætt við kvöð um hitaveitulögn veitna meðfram Fífuhvammsvegi.
-Dælustöð fráveitu neðst á svæði felld út úr tillögu.
Samkvæmt breyttri tillögu minnkar áætluð umferðarsköpun af byggð í Arnaland um 14%.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að mótun deiliskipulagsins sé gerð í sem bestri sátt við íbúa í nágrenninu um leið og að skynsamlegri ráðstöfun þessa mikilvæga og verðmæta uppbyggingarsvæðis sé framfylgt.
Á fyrri stigum ferlisins var brugðist við ábendingum og umsögnum með ýmsu móti, m.a. var dregið úr byggingarmagni, hæðafjölda bygginga osfv. Þær athugasemdir sem bárust við auglýstri tillögu sýna að íbúar í nágrenninu telja að ganga mætti lengra til móts við ábendingarnar á ýmsa vegu. Nefndin fellst á þau sjónarmið og hefur því lagt til þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á tillögunni í samráði við landeiganda og ráðgjafa.
Lögð fram svör við athugasemdum sem fram komu í minnisblaði umhverfissviðs Kópavogsbæjar er varðar innviði á svæðinu.
Tillagan kallar á breytingu á auglýstri breytingartillögu aðalaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands (Arnarneshálss) og hefur verið auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi. Sú breyting er það óveruleg að skipulagsnefnd telur að heimild sú sem Skipulagsstofnun veitti fyrir auglýsingu tillögunnar sé óbreytt.
Í samræmi við 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010 vísar skipulagsnefnd tillögunni til auglýsingar á nýjan leik, enda hefur henni verið breytt í grundvallaratriðum. Tillagan skal auglýst í samræmi við 1. mgr. sömu greinar og 1. mgr. 31. gr. sömu laga.
Stefnt er að því að halda almennan kynningarfund miðvikudaginn 4. desember, klukkan 17:00.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
14. fundur
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic kynnti þær deiliskipulagstillögur sem eru í mótun og ganga til móts við þær athugasemdir sem bárust í auglýsingarferli. Tillögur taka það miklum breytingum að nauðsynlegt verður að auglýsa þær að nýju.
Útfærslan kallar einnig á breytingu á deiliskipulagi Akra og kynnti Jóhanna drög að tillögu þess efnis.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
13. fundur
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu nefndinni grein fyrir þeirri vinnu sem átt hefur sér stað á tillögunni í ljósi þeirra athugasemda sem bárust við auglýsta tillögu.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði, skipulagsráðgjafa og þróunaraðila.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
10. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarlands að lokinni auglýsingu.
Athugsemdir og umsagnir sem bárust innan tilskilins frests lagðar fram.
Tillögu og framlögðum gögnum vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
9. (942). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi ásamt umhverfismatsskýrslu fyrir svæði á norðanverðum Arnarneshálsi samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Samkvæmt tillögunni verður byggðin blanda af 3-6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði næst Hafnarfjarðarvegi. Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni, frá Fífuhvammsvegi og um fyrirhuguð undirgöng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Umferðarreikningar sýna að stærsti hluti umferðar að og frá hverfinu verður um Fífuhvammsveg. Fjölbýlishúsabyggð næst Arnarnesvegi og Fífuhvammsvegi er uppbrotin og lagar sig að landhalla og myndar umgjörð um sameiginlega inngarða. Sérstök kennileitisbygging/atvinnuhúsnæði getur orðið allt að 8 hæðir. Til móts við atvinnuhúsnæði fyrir miðju svæðisins er gert ráð fyrir verslunar- og/eða þjónusturými á jarðhæðum í tengslum við miðlægt torg þar sem m.a. er gert ráð fyrir stoppistöð Borgarlínu. Á svæðinu er gert ráð fyrir u.þ.b. 500 íbúðum og u.þ.b. 40.000 m2 af verslunar, skrifstofu og þjónusturými.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir sama svæði.
Bæjarráð Garðabæjar
15
21. (2122). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi ásamt umhverfismatsskýrslu fyrir svæði á norðanverðum Arnarneshálsi samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Samkvæmt tillögunni verður byggðin blanda af 3-6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði næst Hafnarfjarðarvegi. Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni, frá Fífuhvammsvegi og um fyrirhuguð undirgöng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Umferðarreikningar sýna að stærsti hluti umferðar að og frá hverfinu verður um Fífuhvammsveg. Fjölbýlishúsabyggð næst Arnarnesvegi og Fífuhvammsvegi er uppbrotin og lagar sig að landhalla og myndar umgjörð um sameiginlega inngarða. Sérstök kennileitisbygging/atvinnuhúsnæði getur orðið allt að 8 hæðir. Til móts við atvinnuhúsnæði fyrir miðju svæðisins er gert ráð fyrir verslunar- og/eða þjónusturými á jarðhæðum í tengslum við miðlægt torg þar sem m.a. er gert ráð fyrir stoppistöð Borgarlínu. Á svæðinu er gert ráð fyrir u.þ.b. 500 íbúðum og u.þ.b. 40.000 m2 af verslunar, skrifstofu og þjónusturými.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulag fyrir sama svæði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
7. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarlands sem nær til 8,9 ha svæðis sem í Aðalskipulagi nefnist Arnarnesháls. Tillagan er unnin á vegum landeiganda í samvinnu við Garðabæ.
Umsjón með gerð deiliskipulags er í höndum Nordic Arkitektastofu, ásamt Landslagi og VSB verkfræðistofu. Umhverfisskýrsla og önnur ráðgjöf er unnin af EFLU verkfræðistofu, umferðagreiningar voru unnar af Mannvit nú Cowi og sér sami aðili um Breeam vottun tillögunnar. Jóhanna Helgadóttir arkitekt og skipulagsfræðingur hjá Nordic gerði grein fyrir tillögunni.
Samkvæmt tillögunni verður byggðin blanda af 3-6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði næst Hafnarfjarðarvegi. Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni, frá Fífuhvammsvegi og um fyrirhuguð undirgöng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Umferðarreikningar sýna að stærsti hluti umferðar að og frá hverfinu verður um Fífuhvammsveg. Fjölbýlishúsabyggð næst Arnarnesvegi og Fífuhvammsvegi er uppbrotin og lagar sig að landhalla og myndar umgjörð um sameiginlega inngarða. Sérstök kennileitisbygging/atvinnuhúsnæði getur orðið allt að 8 hæðir. Til móts við atvinnuhúsnæði fyrir miðju svæðisins er gert ráð fyrir verslunar- og/eða þjónusturými á jarðhæðum í tengslum við miðlægt torg þar sem m.a. er gert ráð fyrir stoppistöð Borgarlínu. Á svæðinu er gert ráð fyrir u.þ.b. 500 íbúðum og u.þ.b. 40.000 m2 af verslunar, skrifstofu og þjónusturými.
Meginmarkmið skipulagsins er að leggja grunn að öflugu borgarumhverfi sem styrkir nærumhverfið og bætir lífsgæði bæði þeirra sem sækja svæðið, starfa og búa á svæðinu og í nálægð við það. Helstu áherslur eru á starfsemi og uppbyggingu sem styður við virkan lífsstíl og blandaða byggð.
Helstu markmið skipulagsins eru sett fram í fjórum flokkum, þau eru:
Byggðarmynstur
- að í Arnarlandi rísi borgarumhverfi með lifandi starfsemi og góðum íbúðum á samgöngu- og þróunarás miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Vistvænar samgöngur
- að í Arnarlandi verði greitt aðgengi að fjölbreyttum og vistvænum ferðamátum
Náttúran í borgarumhverfinu
- að í Arnarlandi verði gott aðgengi að fjölbreyttum útivistar- og grænum svæðum bæði innan hverfisins og í nærumhverfinu.
Samfélag og lýðheilsa
- að í Arnarlandi rísi blönduð byggð sem styður við samfélagsheild og bætta lýðheilsu íbúa og gesta.
Tillagan er sett fram á einum deiliskipulagsuppdrætti í mkv. 1:1500, skýringaruppdrætti í mkv. 1:1500 og greinargerð í A4 stærð með skilmálum og skýringarmyndum.
Samhliða deiliskipulagi er lögð fram sameiginleg umhverfismatsskýrsla fyrir breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, Umhverfismatsskýrsla, breyting á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags fyrir Arnarland í Garðabæ, unnin af EFLU verkfræðistofu, dagsett 21.05.2024.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að tillaga að deiliskipulagi Arnarnesvegar verði lögð fram eins fljótt og auðið er í samvinnu við Vegagerðina sem nær til aðgerða til þess að greiða fyrir umferð akandi, gangandi og hjólandi vegfarenda á svæðinu í kringum Arnarland.
Forhönnun aðgerða til að bæta umferðarflæði og öryggi við hringtorg á mótum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar liggja fyrir. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ráðist verði í þær framkvæmdir sem fyrst.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ásamt umhverfismatsskýrslu til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 41.greinar og 31.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til sama svæðis.
Stefnt er að almennum kynningarfundi þriðjudaginn 11.júní nk.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
17
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarlands sem er sett fram í greinargerð og tveimur uppdráttum.
Formaður skipulagsnefndar gerði grein fyrir samtalsfundum með íbúum í Akrahverfi, Hofakri og Arnarnesi sem sendu inn ábendingar á forkynningarstigi.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
5. fundur
Jóhanna Helgadóttir arkitekt hjá Nordic og Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur hjá VSB kynntu tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem er í mótun. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
19
3. fundur
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic arkitektum og Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur hjá VSB gerðu grein fyrir drögum að tillögu deiliskipulags fyrir Arnarland og með hvaða hætti unnið hefur verið úr ábendingum og umsögnum sem borist hafa við forkynningu tillögunnar.
Tillögu vísað til deiliskipulagsráðgjafa og umhverfissviðs til úrvinnslu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
20
12. fundur
Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa í forkynningu tillögu að breytingu aðalskipulags og að deiliskipulagi Arnarlands.
Almennur kynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 31.ágúst og var hann vel sóttur. Að loknum kynningarfundi óskuðu íbúar í Akrahverfi eftir því að boðað yrði til annars kynningarfundar og var orðið við því. Frestur til að skila inn ábendingum var framlengdur um viku eða til 2.október. Aukakynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 20.september og var hann sömuleiðis vel sóttur. Fundargerðir beggja funda lagðar fram.
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic gerði grein fyrir samantekt um innihald ábendinga sem borist hafa.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að umhverfissvið og skipulagsráðgjafi skoði vandlega útfærslu umferðartenginga og flæðis umhverfis skipulagssvæðið í samráði við Vegagerðina og Kópavogsbæ.
Ábendingum, umsögnum og fundargerðum vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
10. fundur
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic arkitektum gerði grein fyrir kynningarefni forkynningar sem verður auglýst innan skamms. Tillaga að deiliskipulagi verður forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til sama svæðis.
Bæjarstjórn Garðabæjar
22
9. (924). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um forkynningu á deiliskipulagi fyrir Arnarland. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands.“ (Mál nr. 2110129)
Bæjarráð Garðabæjar
23
23. (2076). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja forkynningu á tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarland. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
24
8. fundur
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem unnin hafa verið af landeiganda í samráði við Garðabæ. Jóhanna Helgadóttir arkitekt og skipulagsfræðingur hjá Nordic gerði grein fyrir drögunum. Þorgerður Arna Einarsdóttir framkvæmdastjóri Arnarlands var viðstödd fundinn undir þessum lið.
Gert er ráð fyrir að engin uppbygging verði Kópavogsmegin bæjarmarka á hinu óbyggða svæði að svo stöddu.
Gert er ráð fyrir blandaðri byggð íbúða, verslunar og þjónustu. Fjöldi íbúðareininga geti orðið allt að 500 í fjölbýli, um 9.000 m2 ætlaðir heilbrigðistengdri þjónustu, um 20.000 ætlaðir undir skrifstofur, um 3500 fermetrar fyrir verslanir o.s.f.v. Hæðir húsa verði 3 til 6 hæðir og kennileitisbygging heilsuklasa allt að 9 hæðir.
Gert er ráð fyrir að lega Borgarlínu geti orðið um miðju Arnarlands eða á jaðri þess meðfram Hafnarfjarðarvegi en endanleg lega hennar getur ekki ákvarðast fyrr en að hönnun hennar liggur fyrir í áætlunum.
Drögin gera ráð fyrir að umferðartengingar verði frá Fífuhvammsvegi og í undirgöngum undir Arnarnesveg frá hringtorgi á mótum Akrabrautar og Miðakra.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal kynningarfund á forkynningartíma og tillagan kynnt sérstaklega fyrir skipulagsyfirvöldum í Kópavogi.
Tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands skal forkynnt samhliða deiliskipulagstillögunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
25
7. fundur
Jóhanna Helgadóttir hjá Arkþing-Nordic gerði grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem unnið er að á vegum landeiganda í samráði við Garðabæ. Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt voru viðstödd fundinn undir þessum lið og tóku þátt í umræðum.
Skipulagsnefnd vísar hugmyndum til áframhaldandi mótunar og leggur áherslu á gott samráð við skipulagsyfirvöld í Kópavogi.Huga þarf vel að samgöngulausnum með áherslu á umferðarflæði, tengingar við aðliggjandi umferðaræðar og almenningssamgöngur (Borgarlínu).
Skipulagsnefnd Garðabæjar
26
3. fundur
Jóhanna Helgadóttir arkitekt hjá Nordic arkitektum og Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur hjá VSB-verkfræðingum fóru yfir umferðargreiningar og aðrar forsendur skipulagsmótunar á svæðinu.
Vísað til úrvinnslu hjá ráðgjöfum og umhverfissviði.
Guðlaugur Kristmundsson áheyrnarfulltrúi lagði fram eftirfarandi bókun: "Viðreisn leggur til að aldursskilyrði sem núna eru í drögum að skipulagi Arnarlandsins verði endurskoðuð með því markmiðið að fallið verði frá einhverjum skilyrðum um aldur íbúa eða hugmyndir um æskilar fjölskyldusamsetningar á svæðinu. Til þess að gera þetta mögulegt myndi Garðabær óska eftir innviðasamningi við Kópavog um samnýtingu innviða fyrir svæðið, til dæmis skólaþjónustu."
Skipulagsnefnd Garðabæjar
27
1. fundur
Lögð fram skipulagslýsing fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulag Arnarlands ásamt umsögnum sem borist hafa í kynningu hennar.
Jóhanna Helgadóttir skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram við mótun tillögunnar síðan að lýsing var kynnt. Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur fór yfir forsendur samgangna og þau verkefni sem staðið er frammi fyrir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til áframhaldandi mótunar og leggur áherslu á gott samráð og samvinnu við Kópavogsbæ.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
28
4. fundur
Lagðar fram þær umsagnir sem borist hafa við auglýsta verklýsingu.
Baldur Ó.Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður hefur áður rætt og gagnrýnt kynntar hugmyndir um uppbyggingu á s.k. Arnarlandi, norðan Arnarnesvegar - bæði á fundum skipulagsnefndar og einnig í bæjarstjórn.
Í fyrsta lagi að hugmyndir og fyrirætlan með svæðið skyldu ekki upphaflega fyrst bornar upp og ræddar í skipulagsnefnd. Það var ekki gert fyrr en eftir að samningar við Arnarland og tilheyrandi fyrirtæki höfðu verið undirritaðir og þegar ákveðið hvernig skyldi skipulagt og fyrir hvern. Það teljast vart lýðræðileg vinnubrögð.
Þá hefur undirritaður einnig gagnrýnt skipulagshugmyndina sjálfa sem byggir á að þar verði einungis íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Þar verði því í raun samfélagslega einsleit barnlaus byggð. Fyrsta barnlausa hverfið í bæjarfélaginu.
Enda segir í mati Skipulagsstofnunar um þessi áform m.a . „Skipulagsstofnun vill undirstrika að blöndun byggðar felst ekki einungis í blöndun þjónustu, starfsemi og íbúða heldur einnig blöndun íbúðabyggðarinnar sjálfrar, þ.e. blöndun íbúðagerða og eignaforms (m.a hlutfall leiguíbúða)“ þá segir þar einnig „ Að mati Skipulagsstofnunar eru áform um íbúðir fyrir 50 ára og eldri ekki til þess fallin að styðja við þróun blandaðrar byggðar“
Blönduð byggð og íbúðagerð en er ein grunnforsenda vel heppnaðs og lifandi bæjarskipulags. Því ber að taka þessar athugsemdir Skipulagsstofnunar til alvarlegrar skoðunar og framkomnar skipulagshugmyndir til endurskoðunar.
Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."
Bæjarstjórn Garðabæjar
29
2. (898). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (BF,ÁHJ,SHJ,GS,GVG,JS,SS,GE,BÓS) gegn tveimur (ÞÞ,GHÁ) tillögu skipulagsnefndar að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna mótunar tillögu að deiliskipulagi á norðanverðum Arnarneshálsi. (Mál nr. 2110129)
Bæjarráð Garðabæjar
30
4. (2011). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna mótunar tillögu að deiliskipulagi á norðanverðum Arnarneshálsi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
31
2. fundur
Lögð fram skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir Arnarland (Arnarnesháls) sem unnin hefur verið á vegum landeiganda í samráði við Garðabæ.
Landeigandi óskar eftir því að móta deiliskipulag á sinn kostnað í samræmi við 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jóhanna Helgadóttir hjá Arkþing og Þorgerður Einarsdóttir hjá Stefni kynntu lýsinguna.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna í samræmi við 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd beinir því til tækni- og umhverfissviðs að halda áfram samráði við Kópavogsbæ um skipulag á sveitarfélagamörkum með sérstakri áherslu á greiðar og fjölbreyttar samgöngur og vistvænt umhverfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
32
12. fundur
Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Hálfdán Gunnarsson hjá Ósum ehf kynnti áform vegna uppbyggingar á óbyggðu svæði í norðanverðum Arnarneshálsi/Arnarnesholti sem hlotið hefur vinnuheitið Arnarland. Gert er ráð fyrir að áformin kalli á breytingu aðalskipulags.