Beint í efni

Garðprýði 3 skipting lóðar - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2306516

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (927). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna tillögu lóðarhafa að lóðinni við Garðprýði 3 um skiptingu lóðarinnar í tvær lóðir enda er það ekki í samræmi við meginstefnu skipulags svæðisins þar sem eru stórar einbýlishúsalóðir.“ (Mál nr. 2306516)

Bæjarráð Garðabæjar

02

35. (2088). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna tillögu lóðarhafa að lóðinni við Garðprýði 3 um skiptingu lóðarinnar í tvær lóðir enda er það ekki í samræmi við meginstefnu skipulags svæðisins um stórar einbýlishúsalóðir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um skiptingu einbýlishúslóðar að Garðprýði 3 að lokinni skoðun.
Skipulagsnefnd mælir ekki með því að lóðinni Garðprýði 3 verði skipt upp frekar en öðrum lóðum innan deiliskipulagssvæðis Garðahrauns.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram fyrirpurn lóðarhafa lóðarinnar að Garðprýði 3 varðandi möguleika á skiptingu lóðarinnar í tvær lóðir eða að heimild til að byggja tvö íbúðarhús á lóðinni.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.