Hagaflöt 1 - Deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir sem bárust lagðar fram.
Lóðarhafi leggur til breytingu á hæð hússins.
Skipulagsnefnd beinir því til skipulagsstjóra að sú útfærsla verði borin undir þau sem athugasemd gerðu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Flata sem nær til lóðarinnar Hagaflatar 1 að lokinni grenndarkynningu. 3 erindi sem hafa borist með athugasemdum við tillöguna lögð fram. Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Hagaflöt 1. Tillagan gerir ráð fyrir viðbyggingu á baklóð sem nær út fyrir byggingarreit og heildarlengd húss á lóðarmörkum er lengri en 7,5 metrar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Hagaflöt nr. 2 og 3, Garðaflöt nr. 35 og 37 sem og Móaflöt nr.11,13 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að lóðarmörkum að norðan og austanverðu fyrir viðbyggingu.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir samtali við hönnuð og umsækjanda.
Skipulagsnefnd ítrekar að fjarlægð byggingarreits frá lóðarmörkum að austanverðu verði 1 metri og að byggður flötur á lóð fari ekki upp fyrir 35% af flatarmáli lóðar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits einbýlishúss á baklóð.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu til grenndarkynningar sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur verði ekki nær lóðarmörkum að austanverðu en 1 metri.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
9. fundur
Lögð fram tillaga að stækkun byggingarreits á lóð nr.1 við Hagaflöt. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur nái að lóðarmörkum við raðhús númar 13 við Móaflöt og 37 við Garðaflöt.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.