Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulag íbúðarbyggðar á Hleinum.

Málsnúmer 2203672

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

45.(2098). fundur

Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra varðandi mögulega uppbyggingu íbúðarbyggðar á Hleinum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

14. fundur

Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra um beiðni Byggingarsamvinnufélags eldri borgara í Garðabæ um að svæði norðan við Boðahlein og Naustahlein verði ráðstafað til félagsins til uppbyggingar á einnar hæðar sérbýlisbyggð ætluðum félagsmönnum.
Í minnisblaðinu eru tveir kostir skoðaðir, svæðið norðan við Hleina og svæði í Hnoðraholti. Niðurstaðan er sú að báðir kostir komi til greina hvað skipulagsforsendur varðar en vinna þarf breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum ef ráðist verður í uppbyggingu á því svæði. Ef Hnoðraholt yrði fyrir valinu þyrfti að vinna tillögu að 2.áfanga norðurhluta Hnoðraholts . Hvorugur kosturinn kallar á aðalskipulagsbreytingu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Frestað til næsta fundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lagt fram erindi frá Byggingarsamvinnufélagi eldri borgara í Garðabæ til bæjarstjórnar dags. 29. mars 2022 þar sem farið er fram á viðræður við bæjaryfirvöld um uppbyggingu á íbúðarbyggðar á vegum félagsins norðan við Hleinar hjá Hrafnistu.
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði/skipulagsstjóra að vinna að gerð minnisblaðs um stöðu skipulags á svæðinu og hvaða skref er skynsamlegt að taka á næstu misserum til að móta stefnu um framtíð svæðisins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

5. fundur

Lagt fram erindi frá Byggingarsamvinnufélagi eldri borgara í Garðabæ til bæjarstjórnar dags. 29.mars þar sem óskað er eftir samtali við bæjaryfirvöld um uppbyggingu á íbúðarbyggðar á vegum félagsins norðan við Hleinar hjá Hrafnistu. Forsendur eru fyrir hendi í aðalskipulagi og deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til nýrrar skipulagsnefndar sem tekur til starfa að afloknum sveitarstjórnarkosningum´.

Bæjarráð Garðabæjar

06

13. (2020). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar m.t.t. heildardeiliskipulags svæðisins.

Fylgiskjöl