Beint í efni

13. (2020). fundur

05.04.2022
Bæjarráð Garðabæjar

13. (2020). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

05.04.2022

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2103143

01

Kynning verkefnastjóra á stöðu og vinnu við áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Á fund bæjarráð kom Björn H. Reynisson, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og kynnti undirbúning og mótun að stofnun áfangastaða- og markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarfulltrúi Björg Fenger, var á fjarfundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Sunna G. Sigurðardóttir, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrálið.

Málsnúmer 2203298

02

Móaflöt 6 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Alberti Guðmanni Jónssyni, kt. 250878-5249, leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús við Móaflöt 6.

Málsnúmer 2202149

03

Blikanes 22 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Andra Gunnarssyni, kt. 170780-5589,

leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús við Blikanes 22.

Gunnar Einarsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2203636

04

Tilkynning frá Hafnafjarðarbæ um auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 er varðar breytingu á landnotkun við Suðurhöfn, Flensborgarhöfn og Hamarshöfn, dags. 25.03.22.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2203671

05

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar menningar- og safnanefndar um leyfi til áfengisveitinga á jazzhátíð Garðabæjar í Sveinatungu.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2203690

06

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi innleiðingu barnaverndarlaga, dags. 30.03.22.

Lagt fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2203691

07

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka, dags. 25.03.22.

Málsnúmer 2203679

08

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi átak um Hringrásahagkerfið, dags. 30.03.22.

Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2203672

09

Bréf Byggingarsamvinnufélags eldri borgara í Garðabæ varðandi mögulega aðkomu félagsins að uppbyggingu frekari byggðar fyrir eldri borgara á Hleinum, dags. 29.03.22.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar m.t.t. heildardeiliskipulags svæðisins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2103554

10

Drög að samningi við Fagraás ehf.(landeiganda) um uppbyggingu byggðar samkvæmt deiliskipulagi fyrir Krók á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Fagraás ehf. um uppbyggingu byggðar á deiliskipulagssvæði Króks á Álftanesi.

Málsnúmer 2203213

11

Drög að samningi við Vegagerðina um veghald Álftanessvegar.

Bæjarráð vísar drögunum til frekari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 2007295

12

Drög að samningi við Alþjóðaskólann um úthlutun lóðar fyrir starfsemi skólans við Þórsgrund.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Alþjóðaskólann á Íslandi um úthlutun lóðar fyrir starfsemi skólans við Þórsgrund.

Málsnúmer 2201515

13

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála vegna kæru á útboði á þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar, dags. 30.03.22.

Lögð fram og vísað til frekari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 2110240

14

Opnun tilboða í framkvæmdir við jarðvinnu og yfirborðsfrágang knattspyrnuvallar í Urriðaholti.

Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við jarðvinnu og yfirborðsfrágang knattspyrnuvallar í Urriðaholti.

Ljósþing ehf./Stálborg ehf. kr. 88.889.280

Stéttafélagið ehf. kr. 96.109.100

Kostnaðaráætlun kr. 81.134.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Ljósaþings ehf./Stálborgar ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2203696

15

Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.

Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.

Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 6.965.000

VSB verkfræðistofa ehf. kr. 6.975.000

Kostnaðaráætlun kr. 7.350.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkfræðistofu Reykjavíkur ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2204010

16

Fyrirspurn um fjölda tilkynninga er varða þjónustu við fatlað fólk.

Málsnúmer 2102515

17

Drög að útboðslýsingu vegna útboðs á skólamáltíðum í skólum Garðabæjar.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir helstu atriðum útboðslýsingarinnar en útboðið nær til allra grunnskólanna og þriggja leikskóla.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur bæjarstjóra að auglýsa útboð skólamáltíða í skólum Garðabæjar

Málsnúmer 2201001

18

Tillaga yfirkjörstjórnar um kjörstaði og fjölda kjördeilda við sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022.

Bæjarráð samþykkir að tillögu yfirkjörstjórnar um að kjörstaðir í Garðabæ verði í Álftanesskóla og íþróttahúsinu Mýrinni. Í Álftanesskóla verða tvær kjördeildir og í Mýrinni verða átta kjördeildir.