Beint í efni

Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli Rafmagnsþjónustunnar ehf. á rammaútboði Garðabæjar varðand þjónustu rafiðnaðarmanna, dags. 23.06.22.

Málsnúmer 2201515

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (2031). fundur

Í úrskurðarorði kemur fram að útboð Garðabæjar „Rammasamningur. Þjónusta iðnaðarmanna. Raflagnir.“ er fellt úr gildi.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Guðlaugur Kristmundsson, lagði fram eftirfarandi bókun:

„Viðreisn áréttar mikilvægi þess að vanda til verka við útboð og dreginn verði lærdómur af niðurstöðum þegar útboð eru ekki framkvæmd á réttan hátt. Útboð sem er ólöglegt eða illa ígrundað dregur úr eða eyðir algjörlega þeim ávinningi sem að af útboðum hlýst, ávinningi sem réttilega ætti að sitja í höndum skattgreiðenda í Garðabæ. Til þess að útboð heppnist vel þarf að vera jákvætt viðhorf fyrir útboðum hjá bæjarstjórn Garðabæjar og starfsmönnum bæjarins. Viðreisn telur að vel heppnuð útboð séu heilbrigðismerki fyrir góðum rekstri og áætlanagerð.“

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

13. (2020). fundur

Lögð fram og vísað til frekari skoðunar bæjarstjóra.

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. (2011). fundur

Bæjarráð felur Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.