Beint í efni

Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.

Málsnúmer 2203696

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

13. (2020). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.

Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 6.965.000

VSB verkfræðistofa ehf. kr. 6.975.000

Kostnaðaráætlun kr. 7.350.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkfræðistofu Reykjavíkur ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.