Tilkynning frá Strætó bs. varðandi breytingu á leið 23 - Álftanes, dags. 19.06.23.
Málsnúmer 2306417
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
25. (2078). fundur
Í tilkynningunni kemur fram að lagt er til að gera breytingar á pöntunarþjónustu á leið 23 sem felst í því að farþegar hringja eingöngu í sérstakt þjónustunúmer hjá þjónustuveri Strætó í stað þess að nú er einnig hægt að hringja í Hreyfil. Þá er lagt til að allar ferðir um Jörvaveg verði farnar samkvæmt pöntunarþjónustu þannig að ekki verði farið um Jörfaveg ef engin pöntun berst.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur Strætó bs. um breytingar á pöntunarþjónustu á leið 23 Ásgarður - Álftanes.
Á fundinum kom fram fyrirspurn um að fá yfirlit yfir nýtingu á leiðum 22 Ásgarður - Urriaðaholt og 23 Ásgarður - Álftanes.