Reiðstígur í Vífilsstaðahlíð - Dsk.br.
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gerð á nýjum reiðstíg á milli hesthúsahverfa í Garðabæ og Hafnarfirði. Um 2,5 km langan stíg er að ræða.
Nýr reiðstígur liggur frá Grunnuvatnaskarði um Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð og tengist þar reiðstíg í Urriðakotshrauni. Með honum fæst tenging yfir í Hafnarfjörð um núverandi reiðgötur við Smyrlabúð.
Reiðstígurinn er liður í uppbyggingu á stígakerfi í upplandi Garðabæjar. Nýr stígur kemur í staðin fyrir reiðstíginn sem nú liggur með fram Flóttamannavegi frá Smalaholti að bæjarmörkum við Hafnarfjörð, en eldri stígur verður af öryggisástæðum aflagður og nýja tengingin kemur í hans stað.
Á kafla fer stígurinn í gegnum friðland Vífilsstaðavatns en liggur þá að mestu um lúpínubreiðu eða mel. Framkvæmdir eru gerðar í samráði við Náttúruverndarstofnun.
Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gerð reiðstígsins í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
18. (951). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar sem gerir ráð fyrir breytingu á legu reiðstígs í Vífilsstaðahlíð frá Grunnuvatnaskarði að reiðstíg milli hrauns og hlíðar. Umsögn Umhverfisstofnunar liggur fyrir og er ekki gerð athugasemd við tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
05
45. (2146). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar sem gerir ráð fyrir breytingu á legu reiðstígs í Vífilsstaðahlíð frá Grunnuvatnaskarði að reiðstíg milli hrauns og hlíðar. Umsögn Umhverfisstofnunar liggur fyrir og er ekki gerð athugasemd við tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
16. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar sem gerir ráð fyrir breytingu á legu reiðstígs í Vífilsstaðahlíð frá Grunnuvatnaskarði að reiðstíg milli hrauns og hlíðar. Umsögn Umhverfisstofnunar liggur fyrir og er ekki gerð athugasemd við tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur sem gerir ráð fyrir því að lega reiðstígs í Ljósukollulág í Vífilsstaðahlíð breytist og verður að hluta til innan friðlands Vífilsstaðalands. Lega reiðstígsins niður hlíðina breytist til samræmis við niðurstöðu vettvangsskoðunar sem efnt var til nýverið og starfsmenn umhverfissviðs skipulagsráðgjafi, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur og fulltrúi hestamannafélagsins Spretts tóku þátt í.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til meðferðar hjá Umhverfisstofnun þar sem tillagan gerir ráð fyrir að stígurinn muni liggja innan marka friðlandsins.